Andvari - 01.01.1927, Page 31
Andvari
Bjarni Jónsson frá Vogi
29
haldinn verði aÖ Þingvelli við Öxará laugardag 29. júní þ. á.,
helzl einn fulltrúa fyrir hvern hrepp á landinu og aÖ líkri tiltölu
fyrir kaupstaðina; og hugsum vér oss aðalhluiverk fundarins það
að láta uppi og lýsa yfir vilja þjóðarinnar í sjálfstæðismáli hennar“.
Reykjavík og Akureyri, 4. maí 1907.
Benedikt Sveinsson. Björn Jónsson. Einar Arnórsson.
Hannes Þorsteinsson. Sigurður Hjörleifsson. Skúli Thoroddsen.
Fundarboðið fekk ágætar undirtektir um land alt. í
Reykjavík var fundur haldinn 28. maí til þess að kjósa
fulltrúa af hálfu Reykvíkinga til Þingvallafundar. Vóru
kosnir fimtán menn. Þar af vóru sjö úr flokki Heima-
stjórnarmanna, fjórir Landvarnarmenn og fjórir Þjóðræð-
ismenn. Bjarni ]ónsson var einn af fulltrúum Land-
varnarmanna.
Fánamálið hafði siglt hraðbyri frá því það var hafið.
Stúdentafélagið hafði kosið fimm manna nefnd snemma
vetrar til þess að bera fram tillögur um gerð fánans.
Vóru þær gerðar, og samþyktar af félaginu og síðan um
alt land. Rigndi tillögum þessum hvaðanæva að alt fram
á sumar. Akvað nefndin, að fáninn skyldi fyrst hafinn á
stöng alment um landið fæðingardag Jóns Sigurðssonar,
17. júní. Vóru þá 65 íslenzkir fánar dregnir á stöng í
Reykjavík. Þann dag flutti Bjarni snjalla ræðu af svöl-
um alþingishússins fyrir minni Islands.
Nú var hrundið deyfð og drunga af hugum manna í
landi, bæði ungra og gamalla. Gerðust menn gunnreifir,
því að vel gekk fram. »Vex hverr af gengi«.
Þjóðfundurinn á Þingvöllum var háður á tilsettum
degi. Safnaðist þangað fjöldi manna. Fulltrúar vóru
kosnir úr níutíu og tveim hreppum og úr öllum kaup-
stöðum landsins. Sóttu þeir fundinn flestir, svo að full-
trúar vóru yfir hundrað. Auk þess sóttu þangað margir
aðrir, svo að þingheimur var um fjögur hundruð manna.