Andvari - 01.01.1927, Qupperneq 106
104
Norsk vísindastofnun
Andvari
mönnum gefst kostur á að sökkva sér algjörlega ofan í
viðfangsefni sín, án kennsluskyldu, og er reyndar nokkuð
til af því tæi í hinum elztu háskólabæjum Englands.
II.
Stofnunin hóf starfsemi sína haustið 1924, og komu
þá ýmsir vísindamenn til Oslóar að flyfja þar erindi.
Meðal þeirra voru fulltrúar frá Englandi, Frakklandi og
Þýzkalandi, eins og ráð hafði verið fyrir gjört. Annað
haustið, sem stofnunin starfaði, 1925, var eg svo hepp-
inn að vera í Osló, einmitt meðan fyrirlestrarnir stóðu
yfir. Að vísu leyfðu mín eigin störf mér ekki að hlýða
nema .fám þeirra, því að eg flufti erindi mín í háskólan-
um um sama leyti dags. En eg kynntist flestum hinum
erlendu gestum nokkuð, og þótti mér mikið til sumra
koma, einkum prófessors Karlgrens frá Gautaborg. Auk
hans voru þeir þar Meinhof frá Hamborg, Mauss frá
París, Starbuck frá Ameríku, en af Norðmönnum fluttu
þeir erindi A. W. Brögger og Chr. Collin. Fyrirlestr-
arnir voru fjölsóttir, bæði af bæjarbúum og gestum, því
að ungir menntamenn víðs vegar af Norðurlöndum fá
sfyrk til þess að koma til Oslóar meðan þeir standa
yfir. Má nærri geta, að þetta setur mjög svip sinn á
lítinn bæ og eflir hann fil höfuðstaðar, bæði að menn-
ingu heima fyrir og áliti út á við.
En þeir eru fæstir, jafnvel meða) Norðmanna, sem
ná til þess að hlýða fyrirlestrunum. Því eru þeir flestir
prentaðir, og er þeim og öðrum ritum stofnunarinnar
ætlað að koma erlendum fræðimönnnum að notum. Þau
rit, sem samin eru á norsku, eru því ýmist þýdd á ein-
hverja höfuðtungu eða ágrip þeirra prentað á ensku
aftan við. Hér skal til fróðleiks birt skrá um rit stofn-