Fálkinn - 13.06.1966, Side 11
Eftir að barnið fæddist og upp
^ komst um skyldlcika þeirra,
urðu systkinin (foreldrarnir)
að hittast á Iaun, þar sem sam-
búð þeirra hafði verið bönnuð.
Myndirnar sýna einn slíkan
leynifund. Á neðri myndinni
sést Per Krister drekkja sorg-
um sínum í bjór.
Mánuði síðar fengu þau bréf frá barna-
verndarnefnd, þar sem þeim var til-
kynnt, að þau væru systkin. Þau tóku
ekkert mark á bréfinu. og enginn skipti
sér af neinu, þegar barn þeirra fæddist
11. nóvember 1964. Brátt var bréfið
gleymt.
Svo rann upp 19. febrúar 1965. Per
Krister var við vinnu sína í verksmiðj-
unni. Skyndilega lögðu tveir lögreglu-
menn hönd á öxl hans og tilkynntu
honum, að hann væri tekinn fastur,
ákærður um sifjaspell. Per Krister var
hnepptur í varðhald.
Ulla:Britt sat heima með son sinn á
hnjánum og velti því fyrir sér, hvernig
þetta hefði getað gerzt. Og smám saman
kom sannleikurinn í ljós. Foreldrar
þeirra höfðu skilið. Per ólst upp á
barnaheimili, Ulla-Britt hjá ömmu
sinni. Þriðja barnið, Sonja, ólst upp hjá
vandalausu fólki. Sonja uppgötvaði, að
hún átti systkin og leitaði Ullu-Britt
uppi. Hún fékk að vita, að hún ætti
einnig bróður, sem héti Per Krister.
En Sonja heimsótti móður sína, er sagði
henni. að hún ætti að vísu bróður, en
hann héti ekki Per Krister, heldur Ingi-
mar. Ingimar Högström kom hins vegar
aldrei í leitirnar, og Sonja gafst upp
við að leita bróður síns. Henni brá
FALKINN
11