Vaka - 01.09.1929, Page 48
174
KRISTINN E. AN DRÉSSON :
[vaka]
Feneyja, og þótti okkur dvölin vissulega of stutt. 40°
hiti var um daginn og bjart var á Markúsartorgi. Margt
þótti mér með öðrum hætti en ég hafði búizt við, en
draumblær hvílir yfir borginni. Hvorki sést þar spor-
vagn, bifreið, hestur né vagn. Sumum finnst ef til vill
óviðfeldið, að nú þeysa vélbátar eftir sundunum, svo að
gondólarnir eru ekki einráðir lengur.
Frá Bassanó hófum við gönguför okkar að nýju.
Við skoðuðum vígstöðvar ítala á Monte Grappa. Við
komum þangað í steikjandi sólarhita á hádegi eftir 5
tíma göngu, og höfðum klifið 1600 metra um morg-
uninn. Við fengum þaðan bezta útsýni yfir lágslétt-
una suður á bóginn. Feneyjar sáum við, en aðeins
í móðu sökum hitans. Við vorum þarna staddir á suð-
urbrún Alpafjallanna og runnu fljót fram á báðar
hendur. Þau eru hvít af kalki. Dökkum lil sló á lág-
lendið og var yfir fljótin að líta sem hvítfyssandi hrim
við strönd. Yfir var himininn fagurblár, en úti við sjón-
deildarhringinn rann haf og liiminn í eina móðu, er
bar ýmist bláma frá himni, roða frá sólu eða skugga frá
móleitri sléttunni. Á Monte Grajtpa sjást enn ýmsar
menjar eftir striðið. Þar liggja víða hrot úr sprengi-
kúlum, hyssum, hjálmum, ýmsum áhöldum hermanna
o. s. frv. Þar er grafreitur og beinahús. Fjöldi manna
féll þar í styrjöldinni. Þar er nýreist líkneski allmikið
af Maríu mey með Jesúbarnið og er sléttað þar allt
umhverfis. Einnig er þar nýreist kapella. En nckkru
norðar á fjallinu var unnið að byggingu sigurmerkis
mikils. Eiga þar undir að verða geymd bein fallinna
hermanna. Frá Maríulíkneskinu og þangað liggur breið
braut, er nefnist Via sacra. Við gengum um stund eftir
jarðgöngum i fjallinu og sáum, hvar hermennirnir
höfðu hafzt við í stríðinu.
Frá Monte Grappa héldum við áleiðis til Lucerna,
vigstöðva Austurríkismanna. Á þeirri Icið bar það helzt
til tíðinda, að við félagarnir urðum viðskila hverir við