Vaka - 01.09.1929, Side 51
[vaka]
SVAHTSTAKKAR í SUÐUR-TÍRÓL.
177
Tíról. En ekki er leyfilegt að fara yfir landamærin
milli Norður- og Suður-Tíróls, nema á tveim stöðum,
um Reschen-Scheideck og Brenner, og ferfaldur vörður
er við landamærin. En við ákváðum að reyna að stelast
yfir. Fascistar höfðu aldrei haft nein afskifti af okkur
önnur en þau, að þeir heimtuðu við og við að sjá
vegabréf okkar. En þá var mest að óttast. Þegar nálg-
aðist landamærin, fórum við mjög hljóðlega. Fyrsti
vörðurinn leit aðeins á vegabréf okkar og hefti í engu
för okkar. Við höguðum því svo til, að við komum í
rökkri um kvöld í þorpið, er næst var landamærunum.
Þar sátu hæði hermenn og fascistar. Við höfðum enga
viðdvöl í þorpinu, sáum þar nokkra fascista, en þeir
veiltu okkur ekki eftirtekt. Við héldum áfram upp í
fjöllin, og nú var ekki eftir nema að sleppa fram hjá síð-
asta verðinum. Við vissum af seli uppi í fjallinu og
þangað komum við um kvöldið. Þar voru vitanlega
Þjóðverjar og sögðu þeir okkur, hvar varðmennirnir
höfðust við. Ráðlögðu þeir okkur að fara fyrir morgun
yfir landamærin og myndi þá varðmennirnir sofa. Þetta
gerðum við, og urðum þeirra heldur ekki varir. Síðan
héldum við niður eftir Zillerdal og yfir i Inndalinn til
Rattenberg. Þar tókum við lest til Múnchen 7. septem-
ber. —
Eins og geta má nærri, var ferðalag okkar að mörgu
leyti mjög skemmtilegt. Við vorum í fyllsta máta frjálsir.
Við fórum sjaldan svo hratt yfir, að við þreyttumst á
göngunni. Við bárum að vísu um 12 kg., en þeirri
byrði vöndumst við. Við höfðum allt meðferðis, er við
þurftum til fararinnar, matreiddum jafnan sjálfir og
keyptum sjaldan nema til eins dags í einu. Upp um öll
fjöll eru þorp og verzlanir. Mjólk gátum við víðasthvar
fengið og egg. Ekki voru vandræði með eldivið. Svo að
segja hvar sem var gátum við fengið nægilegt elds-
neyti, og víða lá bútað brenni á leið okkar. Rigningar
voru ekki tíðar, svo að venjulega var viðurinn þurr. Við
12