Vaka - 01.09.1929, Side 113

Vaka - 01.09.1929, Side 113
[vaka] TRÚ OG VÍSINDI. 239 Þá er annað, sem gerir þekkingu vora næsta ófull- komna, og það er það, að skynfæri vor bregða annar- legum blæ yfir hlutina og hin utan að komandi áhrif, svo að vér skynjum þau ekki eins og þau kunna að vera í sjálfu sér, heldur eins og þau birtast fyrir hug- skotssjónum vorum. Því sagði Kant, að skynfæri vor væru eins og marglit gler, sem brygðu annarlegri birtu yfir allt það, sem umhverfis oss er. Úr mismunandi mótspyrnu, sem er ekki annað en mismunandi aflmun- ur milli átaks vors og mótspyrnu þeirrar, sem hlutirnir eða efnisagnir þeirra veita, búum vér til loftkennd, fljótandi, seig eða föst efni; úr loftbylgjunum búum vér til hljóð, úr sveifluhraða efniseindanna hita, úr Ijós- vakabylgjunum ljós og liti og úr rafmagnsbylgjunum ýmist titring, högg, hita, Ijós eða jafnvel þrumur. Þetta sýnir, að sömu eða svipuð áhrif geta valdið mismun- andi skynjunum eftir því, á hvaða skynfæri þau verka, og að vér skynjum ekki áhrifin, eins og þau kunna að vera í sjálfu sér, heldur eins og skynfæri vor skynja þau. Því verður þekking vor á þeim ekki frumleg, held- ur a n n a r 1 e g . Þá verður þekking vor jafnan afstæð (realtiv), en aldrei algjör af þvi, að vér þurfum jafnan eitthvað til að miða við bæði i skynjun vorri og hugsun. Og vér verð- um jafnan að feta oss frá einu í annað, í stað þess að skynja það eða hugsa í einni heildarsýn. Vér getum t. d. ekki ákveðið neitt i tímanum nema með því að miða við einhvern atburð, sem vér teljum timann frá, og hann verðum vér að miða við einhvern annan athurð, er liggur lengra aftur i tímann, og svo koll af kolli. Ekki getum vér heldur ákveðið neitt í rúminu nema að miða við einhvern annan stað eða staði í rúminu og þá aftur við aðra staði og svo koll af kolli. Hreyfingu hluta getum vér heldur ekki ákveðið nema með því að miða hana við eitthvað annað, sem er tiltölulega óhreyf- anlegt. En ef allt er á fleygiferð í himingeimnum og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Vaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.