Vaka - 01.09.1929, Page 121
vaka]
ORÐABELGUR.
247
málum eru þeir enn svo iniklir byrjendur, að það getur
tekið tíma að finna leið, sein þeim hentar, og á þeim
tíma geta ýmis víxlspor verið stigin, sem erfitt verður
um að bæta.
Eg minnist ekki, að trúin á „eðli lslendinga“ og
nauðsyn þess að rannsaka það og skapa þjóðinni stakk
eftir því hafi nýlega komið skýrar fram en í grein
eftir síra Ragnar E. Kvarar í Eimreiðinni síðastliðið
vor: Um bíl og stil. Höf. viðurkennir að vísu,
eins og sjálfsagt er, að enn sé ekki framkvæmd full-
nægjandi rannsókn á eðli íslendinga. „Vér verðum enn
sem komið er að reisa flestar vorar skoðanir á upp-
lagi þjóðarinnar á mjög huglægum og ónákvæmum
athugunum skálda vorra og rithöfunda". En því verður
að tjalda sem tik er. Síra Ragnar kemur með nokkur-
ar athuganir um þetta efni frá sjálfum sér, sem eru
góðra gjalda verðar. Og svo heldur hann áfram: „En
„eðli íslendinga“ er sá kraftur, sem vélina á að knýja.
Þjóðlífið. hel'ur þá fyrst fengið sannan og trúan stíl,
er athafnir þjóðarinnar túlka það eðli“. Og hann fer
síðan feti lengra. Honum er ekki nóg að tala um eðli
fslendinga. Hann talar um „genius“ þjóðarinnar.
Mér þótti vænt um þessa grein síra Ragnars, ekki
einungis af því að hann hélt þar fram málstað, sem eg
tel réttan og hcilbrigðan, heldur af því að það var svo
mikill gróandi í henni. Hún var hæði að hugsun og
l'ormi mikil, nærri því ótrúleg, framlör frá ári eldri
grein um sama efni. Sira Ragnar er að verða mikilvirk-
ur rithöfundur í tímaritum vorum, en tímaritin ber nú
einna hæst i bókmenntalifi íslendinga. Slíka menn
er mikil ánægja að sjá vaxa og þroskast.
En því meir brá mér í brún, er þessi sami maður
skrifar nú fám mánuðum seinna: „Annars er nokkurs
um vert að gjalda varhuga við, að þessi fluga um „ís-
lendings-eðlið“ lari ckki alveg ofan i menn. Það gæti
verið hálfleiðinlegt að þurfa að hósta henni upp aftur“.
Er það þetta, sem sira Ragnar er að gera sjálfur, þó
að óþægilegt sé? Er hann í hinni nýju Iðunnargrein að
hósta upp niðurstöðunni í Eimreiðargreininni um bíl
og stíl?
Þetta væri ekki einungis skaði fyrir málefni, sem ekki
á of marga formælendur, heldur líka mannskaði. Síra
Ragnar helur i greininni um bíl og stíl sýnt, að hann