Vaka - 01.09.1929, Page 122
248
ORÐABELGUR.
í vaka]
getur hugsað bæði eins og íslendingur og heimsborgari,
horft til tveggja handa. Hann hefur skilyrði til þess að
verða einn þeirra manna, sem leiðbeina þjóðinni í
vandamálinu að kjósa og hafna. Og fyrir hans eigin
andlegu heilsu verður það hollt, að hann leggi sér til
munns talsvert af þekkingu og athugun á íslenzku eðli
og einkennum, samhliða því sem hann þambar strauma
vestrænnar menntunar. Eg held hann ætti ekki að hósta
flugunni upp, heldur renna henni niður og — melta
hana. S. N.
RITFREGNIR.
GUNNAR GUNNARSSON: Úr blöðum Ugga Greips-
sonar. (Af Uggi Greipssons Optegnelser).
[Grein þessi er rituð að tilmælum ritstjóra nokkurs i Dan-
mörku um það bil er „En Dag tilovers" kom út. En er ritstjór-
inn liafði lesið greinina, leizt honum ekki á blikuna. Hann dró
enga dul á, að hann þyrði ckki að leggja það á vinsældir blaðs-
ins að flytja slikan dóm um rit Gunnars Gunnarssonar. Ég
yrði að breyta greininni til muna. Og er ég reyndist ófús til
þess, fórst það fyrir, að liún kæmi út. Siðan hefi eg ekki hirt
að koma henni á framfæri i Danmörku, en liefi snarað hcnni
á islenzku lianda ,,Vöku“.]
Svo mætti virðast, sem það væri ótimabært, að birta
nú ritdórn um hið mikla skáldverk Gunnars Gunnars-
sonar, það er að ofan getur. En þess er að gæta, að ein-
mitt þessa dagana stendur Gunnar Gunnarsson þús-
undum af unnendum sínum og dáendum i fersltu
minni. Síðasta bók hans, „En Dag tilovers“ er nýkom-
in út. Hér hefir farið sem fyr: — Skammur dagur
hefir orðið skáldinu efni í langa bólt. Og að ýinsu leyti
virðist mér ritiðju Gunnars Gunnarssonar einmitt vel
lýst með þvi. Hraðfleygir dagar verða að langri bók,
stundum mjög langri og mjög sltemmtilegri, en stund-
um aðeins mjög langri.
En annars áttu þessar línur ekki að verða neinn
heildardómur á höfundarstarfi Gunnars, aðeins ofurlít-
ill skerfur til mats á skáldverki, sem í sjálfu sér virð-
ist harla aðgengilegt og auðmetið. Það er aðeins íslenzk