Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 40

Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 40
40 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Í Hjaltalín sýnist manni að Högni Egilsson, söngvari og gítarleikari, sé aðal- gaurinn, semji og komi fram sem tals maður sveitar innar. Á bak við hann er fjöldi hámenntaðra músíkanta, meðal annars Sig- ríður Thorlacius söngkona, sem hefur verið að gera það gott ein og sér með plötunni Á Ljúflings- hól þar sem hún syngur lög Jóns og Jónasar Árnasona, og Rebekka Bryndís Björnsdóttir, sem setur sterkan svip á heildarhljóm bandsins með fagottleik. Fagott hefur varla heyrst í íslensku rokki síðan á fyrstu plötum Þursanna. Nú freista ég þess að kryfja fyrirbærið Hjaltalín með stelpunum tveimur. „Þetta er nokkuð rétt lýsing hjá þér,“ segir Sigga. „Á fyrstu plöt- unni samdi Högni allt og helming- urinn af lögunum á þeirri plötu kom tilbúinn, lögin útskrifuð og klár. Eftir það fórum við að túra og höfum hrist saman sem hljóm- sveit.“ „Við vorum búin að spila lögin til núna, áður en við tókum þau upp. Það er náttúrulega mikill munur,“ segir Rebekka. „Viktor fiðluleikari er líka farinn að semja einhver lög og útsetja og við erum öll farin að gutla í texta- gerðinni. Það voru líka allir saman í stúdíóinu, ekki bara einn í einu, eins og á fyrri plötunni, þegar það vantaði eitthvað,“ segir Sigga. Gott að við séum þó tvær Hjaltalín hefur sem sé þjappast saman sem hljómsveit. Oft koma miklu fleiri við sögu á tónleikum, en föstu meðlimirnir eru sjö (þeir voru níu í byrjun). Stelpurnar segja að þó að Högni hafi tekið að sér að stýra bandinu í byrjun sé ágætis lýðræði. Rebekka: „Það eru haldnir krísu- fundir ef þarf og við erum í enda- lausu spjalli á netinu. Ekki má svo gleyma umboðsmanninum (Stein- þóri Helga Arnsteinssyni), sem passar upp á þetta.“ Hvernig er svo að vera tvær stelpur innan um alla þessa stráka og táfýlusokka? Sigga: „Það er ótrúlega gott að við séum þó tvær. Maður hefur oft hugsað um það á öllum þessum ferðalögum að það hefði verið erfitt að vera eina stelpan.“ Rebekka: „Það var ein ferð sem Sigga komst ekki í og það var alveg rosalegt. Ég veit ekki hvernig á að lýsa því – það var alveg gaman, sko – en maður var tekinn miklu meira fyrir. Maður hafði ekkert bakköpp. Maður gat ekki verið í friði með Siggu inni á herbergi.“ Sigga: „Ég held líka að það sé gott fyrir þá að við séum tvær.“ Sleppiði við að róta? Sigga: „Nei, nei, við hjálpum oft- ast til, en okkur er hlíft ómeðvitað við stóra dótinu. Á móti tökum við oft að okkur að vakna og vekja hina. Við erum búin að spila mjög mikið á þessu ári. Alveg búin að vera fimm mánuði af árinu á ferðalög- um. Höfum spilað um 100 tónleika, aðallega í Evrópu, þar með talið tvo túra um Bretland. En maður veit ekkert hvað það þýðir í hinu stóra samhengi. Okkur finnst þetta alla- vega ganga vel.“ Hvernig eyðið þið tímanum á túrum? Rebekka: „Við höfum einstaka sinnum brotið þetta upp og farið á skíði eða skoðað kastala ef það er í boði.“ Sigga: „Já, það er alltaf smá túr- ismi og svo er bara gott að setj- ast einhvers staðar og fá sér kaffi. Við keyrum oftast sjálf og erum oft sein. Þá er enginn tími til að drepa.“ Kraftaverk í úðabrúsa Áfram spjöllum við um líf tónlistar- mannsins sem lafir á horriminni í viðleitni sinni til að láta drauminn rætast. Er þetta líferni sem með- limir bandsins eru tilbúnir að eyða næstu tíu árum í? Það koma vöflur á Hjaltalínstelpurnar. Sigga: „Úúú … allavega eins og staðan er í dag eru allir til í að prófa þetta áfram og sjá til. Ann- ars hefur ekki verið mörkuð nein langtímastefna. Fólk hefur ekki skrifað undir neinn samning. Þetta er alveg pínkulítið erfitt. Við getum ekki verið í fastri vinnu hérna heima og það koma stundir þegar enginn á pening fyrir kaffi- bolla. Fólk misskilur þetta eitthvað ef það heldur að það sé ægilega glamúrus að vera alltaf á ferð og flugi.“ Rebekka: „Talandi um glamúr þá er ekki alltaf rými til að fara á hótel eða komast í sturtu. Það er oft bara sofið í bílnum. Við höfum komist að því að Johnsons og Johnsons barna- púður í hárið gerir kraftaverk. Það þurrkar upp olíuna í hárinu og það sér enginn að það er skítugt.“ Sigga: „Við uppfærðum okkur seinna úr barnapúðrinu þegar við komumst að því að í Bretlandi fæst svokallað dry shampoo í úðabrúsa. Það er algjör snilld, sturta í brúsa. Við keyptum nokkra brúsa á mann og glöddumst mjög mikið. Eftir að strákarnir föttuðu þetta hafa þeir ekki hætt að sníkja. Þeir hafa nátt- úrulega ekki rænu á að kaupa sér brúsa sjálfir. Við reynum að fela brúsana fyrir þeim eins og við getum. Þeir eru ágætir með skí- tugt hár.“ Finnst ykkur kreppan hafa gert ykkur það auðveldara að standa í þessu harki? Sigga: „Jú, kreppan lækkar standardinn hjá öllum. Það eru einhvern veginn allir í einhverju harki.“ Rebekka: „Manni finnst maður ekki alveg jafn mikill – ég veit ekki … aumingi? – í samanburði við vina sína sem voru kannski bæði í skóla og að vinna.“ Sigga: „Að vera að harka í hljóm- sveit hefur einhvern veginn hækk- að aðeins á glæsiskalanum. Það er dýrt fyrir okkur að vera alltaf að fara út, en á móti kemur að við fáum borgað í erlendum gjaldeyri svo þetta núllast út. Túrarnir standa yfirleitt undir sér.“ Hreindýrasteik og rjómaterta En að nýju plötunni, Terminal. Hvað erum við að tala um? Siggi: „Hún er rosa stór. Ekk- ert Less is more, frekar More is more. Hún skiptist til helminga. Annar helmingurinn er bandið í hljóðveri að hlaða ofan á lögin, bara hefðbundið, band að taka upp í hljóðveri, en hinn helmingurinn er hljómsveitarupptökur þar sem um fjörutíu manns eru að spila inn í einu læf.“ Rebekka: „Þessi plata er allt öðruvísi en hin. Allavega finnst okkur það.“ Sigga: „Við pældum miklu meira í textunum á þessari plötu. Þeir skipta miklu meira máli fyrir lagið en áður.“ Rebekka: „Við föttuðum það eftir á að það eru engir textar á íslensku. Það er í alvöru miklu erfiðara að semja texta á íslensku. Ekki það að við séum eitthvað löt. Þetta varð bara svona.“ Eigum við að snúa okkur að eldamennskunni til að finna sam- líkingu? Sigga: „Hmmm … Ef fyrri plat- an var pylsa með öllu, þá er þessi hreindýrasteik með baunum og rauðkáli og rándýrri sósu. Og rauð- vínsglas með.“ Rebekka: „Eða: Sleepdrunk Sea- sons var súkkulaðihrískaka sem er geðveikt góð en Terminal er rosa- leg rjómaterta, mettandi og góð. En maður vill samt alltaf meira.“ Barnapúður í hárið gerir kraftaverk Hljómsveitin Hjaltalín snýr aftur eftir helgi með plötuna Terminal. Stelpurnar í hljómsveitinni, þær Sigríður Thorlacius og Rebekka Bryndís Björnsdóttir, sögðu Dr. Gunna að ef fyrri platan væri pylsa með öllu væri sú nýja hreindýrasteik með öllu. TERMINAL KYNNT UM LANDIÐ Önnur plata Hjaltalín, Terminal, kemur í versl- anir á mánudaginn. Hljómsveitin eyddi stórum hluta ársins í Hljóðrita í Hafnarfirði við vinnslu plötunnar ásamt Sigga og Kidda úr Hjálmum, milli þess sem sveitin þeyttist um alla Evrópu á tónleikaferðalögum. Á öllum þessum þeytingi gaf sveitin sér tíma til að semja og þróa með sér lögin, meðal annars á nærfötunum á hótelherbergjum, níu tíma ökuferð- um milli tónleikastaða, í fjallakofa í Noregi og sumarhúsi á Ítalíu. Platan inniheldur ellefu lög og hafa tvö þeirra, „Suitcase Man“ og „Stay By You“, fengið talsverða útvarpsspilun. Útgáfutónleikarnir fara fram í Loftkastalanum á miðvikudaginn næstkomandi, 25. nóvember. Um upphitun sér Daníel Bjarnason, sem stjórnar að auki stóru kammersveitinni sem leikur með bandinu í sumum lögum. Hljómsveitin er á tónleikatúr um Ísland um þessar mundir með Snorra Helgasyni og Sigríði og Heiðurspiltunum. Eftirtaldir tónleikar eru eftir: 21. nóv: Egilsstaðir – Sláturhúsið (Forsala: Menningarsetrið Egilsstöðum) 22. nóv: Höfn – Pakkhúsið (Forsala: Menningarmiðstöð Hornafjarðar) 24. nóv: Keflavík – Frumleikhúsið (Forsala: Tónlistarskóli Reykjanesbæjar) 25. nóv: Reykjavík – Loftkastalinn (Forsala: Loftkastalinn og Miði.is) 26. nóv: Sauðárkrókur – Mælifell (Forsala: Ólafshús) 27. nóv: Dalvík – Menningarhúsið Berg (Forsala: Kaffihús Menningarhússins) 28. nóv: Akureyri – Græni hatturinn (Forsala: Eymundsson) 29. nóv: Borgarnes – Landnámssetrið (Forsala: Landnámssetrið) Kreppan lækkar standardinn hjá öllum. Það eru einhvern veginn allir í einhverju harki. Að vera að harka í hljómsveit hefur einhvern veginn hækkað aðeins á glæsiskalanum. - Sigríður Thorlacius FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA FÓLK HEFUR EKKI SKRIFAÐ UNDIR NEINN SAMNING Rebekka, Sigga og strákarnir í Hjaltalín: Hjörtur, Högni, Viktor, Guðmundur Óskar og Axel.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.