Vikan

Issue

Vikan - 18.02.1965, Page 48

Vikan - 18.02.1965, Page 48
Tvær fallegar og ákaflega nýtízku- legar golftreyjur meö opnu prjóni og hekli, sem núna er mest notað á sokkum, kjólum og peysum. ■ ,. i m Ý'ÍWWZWr ' Talað við ungbarnið Þótt svo geti virzt, að móðir, sem talar við ómálga ungbarn, sé á nokkurs konar eintali, er það mesti misskilningur. Hún á þar samræður við barnið, báðum til mikillar ánægju, ekki sízt barninu. Barnið er ekki orðið margra vikna, þegar það fer að svara móð- ur sinni með ýmsum hljóðum. Stuttu eftir fæðinguna, má gera ráð fyrir að barnið skilji tölu- vert af því, sem við það er sagt, af móðurinni að minnsta kosti. Það hlustar með athygli á hana og skilur brátt, að málið er tæki til skilnings milli manna. Umhyggjusöm móðir finnur margt til að tala við barnið sitt um. Hún talar um vatnið, meðan hún baðar það, segir hve gott og þægilegt sé að sprikla þarna í volgu vatninu — hún talar um rúmið og pelann, fötin þess, hend- ur, fætur og allt milli himins og jarðar. Sé talað þannig við barnið strax frá fæðingu, lærir það miklu fyrr en ella ýmis orð og hugtök og þjálfast um leið í samfelldri hugsun. Hjalið og hálfkæringurinn eru ekki bara æfingar til að þjálfa raddböndin, heldur trúir barnið því statt og stöðugt, að það sé að tala og að hlustað sé á það — og að mamma skilji þetta allt mætavel. ‘Olmvain Hafið í huga, að ilmvatnslykt hreytist venjulcga mikið, þegar ilmvatnið er komið á húðina. Þess vegna verður lyktin ákaf- lega misjöfn eftir því hvaða kona ber þaö — lykt, sem er góð á cinni, er alveg ómögu- Ieg á annarri. Bezt er að bera svolítið á úlnliðinn að innan- verðu, við slagæðina, og láta það vera þar dálitinn tíma til að átta sig vel á hvernig lykt- in verður og hvernig hún venst — og hvernig hún endist. Það er nefnilega mjög misjafnt, hve lengi lyktin helzt á húð- inni. Venjulega er svo ilm- vatnið borið á bak við eyr- un, þegar farið er að nota þaö daglega, og varast þarf að nota of mikið, þvl fátt er leiðiniegra og óþægilegra en kona, sem angar svo sterkt, að lyktin yfirgnæfir allt annað. Það væri t.d. ckki skemmti- lcgt að sitja við hlið siíkrar konu við matarborð. Sé far- ið í sólbað mcð ilmvatn á húð- Inni, geta myndazt dökkir flekkir þar sem það var bor- ið á. Það cr Bergamotolían í ilmvatninu, sem orsakar það. Það cr rétt að hafa það í huga næsta sumar — cða í háfjalla- sólinni og skíðafcrðunum í vctur. VIKAN 7. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.