Vikan


Vikan - 07.12.1972, Síða 20

Vikan - 07.12.1972, Síða 20
HANN SKRÁÐI JÓLAGUÐSPJALLIÐ Við þekkjum öll söguna, sem hefst þannig: „En það bar til um þessar mundir..Á hana hlusta trúaSir kristnir menn jól eftir jól án þess aS þreytast á henni. En þegar viS hlustum á þann boSskap, hugleiSum viS ekki alltaf hvernig hann varS til. í þessari fögru frásögn frá landinu helga bregSur séra Poul Borchsenius ímyndunaraflinu fyrir sig og lýsir því, hvernig jólaguSspjalliS mótaSist fyrir næstum tvö þúsund árum - þegar þaS skeSi, sem enn hefur svo mikla þýSingu fyrir fjölda fólks um allan heim. [inn þungbúinn febrúardag fyr- ir mörgum árum kom ég í fyrsta sinn til Jerúsalem. Borgin helga var hvít af snjó; minni háttaj- náttúruhamfarir höfðu lostið Miðjarðarliafsbotna. Frostið liafði komizt niður í níu stig, og hvirflandi stormsveipir höfðu sveipað þessi suðrænu lönd norrænum vetrarskrúða. Borgin var þakin snjó,' vindurinn smó eftir göt- unum, sem voru hálar af klaka, og þeir fáu, sem hættu sér út undir bert loft, bogruðu áfram hálfbogn- ir móti veðrinu. En ég bauð vetrin- um byrginn, enda vanur honum að heiman. Fyrst ætlaði ég að leggja leið mína til fjallsins Síon. Ég óð snjóinn í hné yfir dalinn, sem greinir nýja borgarhlutann, sem byggður er Gyðingum, frá gömlu borginni. Hið eina af þeim borgarhluta, er þá heyrði til Israel, var Síon, sem ísraelskir hermenn liöfðu tekið með stormáhlaupi. Á vegvísi stóð á hebresku: Lehar Sí- on, til Síon-fjalls. Stígurinn, sem var þráðmjór, lá í ótal bugðum upp fjallshlíðina. Uppi í hlíðinni miðri nam ég staðar við stóra töflu, sem einnig var með hebreskum texta. Það var ómaksins vert að stafa sig i gegnum hann, þvi að sjaldan hef- ur nokkur setning úr Bibliunni ált betur við en þessi orð úr tuttugasta og fjórða Sálmi: „Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dveljast á hans lielga stað? Sá, er liefur óflekkaðar liendur og lireint hjarta . . .“ Þctta var alveg u.þ.b. er Israel var stofnað og hafði gengið með sigur af hólmi úr stríðinu 1948, og þá lágu landamærin milli ísraels og Jórdaníu nálægt Síon-fjalli. Ofan af vfirgefinni mosku sá ég yfir að gráum múrum gömlu borgarinnar, þar sem liðsmenn úr Arabalegíón- iiini með rauða höfuðdúka stóðu vörð. Þeir héldu byssum sínuin þannig, að hlaupin beindust gegn okkur, og ísraelskir varðmenn okk- ar megin, klæddir i kaki, voru engu síður á varðbergi. Þetta var þess virði að bjóða byrginn vetri og snjó, því að fjallið Síon hefur minj- ar frá gamalli tið. Hér er gröf Dav- íðs konungs, hér minnast kristnir menn þess, að i liúsi hérna uppi í fjallinu liélt Jesús kveðjuveizluna, og liér bjó jómfrú María unz hún var færð til himins i dauðadái sínu, samkvæmt kaþólskum átrún- aði. Kaþólskir kalla það himnaför Mariu. Kirkja var reist á þeim stað, er þetta kvað hafa gerzt, og heitir dýrðarhús það Dormition — svefn. Kirkjan er einmitt á þeim stað á fjallinu, sem orðið hefur hvað harð- ast úti i stríðum nágrannaríkjanna, sem hér liafa átl hlut að máli upp á síðkastið. Bæði 1948 og 1967 voru skotin göt á þak kirkjunnar. En auðvitað sækja þangað margir kaþólskir pilagrímar. En sé það rétt, að móðir Jesú hafi liúið hér það sem eftir var æv- innar eftir að Jósef maður liennar dó, þá gefur það ímyndunaraflinu þó nokkurn byr undir vængi. Hún hlýtur að liafa orðið gömul, liá- öldruð. Nú er það hald margra að Jesús hafi ekki fæðzt árið 1, held- ur fremur fjórum eða fimm árum fyrir upphaf okkar tímatals. Það þýðir að Marja hefur fæðzl tuttugu lil tuttugu og fimm árum fyrir upp- liaf okkar tímatals. Og ef heim- sóknin, sem hér skal fjallað um, hefur ált sér stað árið 55 eða þar um bil, eða jafnvel síðar, þá hefur María þá verið komin um áttrætt. Mósaíkmynd. Hún er á sínum stað í múrnum, þar sem liún hefur ver- 20 VIKAN JÓLABLAÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.