Vikan - 13.06.1991, Page 24
Allir sem gifta sig eftir 1.
júní í ár og fram til ára-
móta geta tekið þátt i
skemmtilegum leik á vegum
Vikunnar og Kodak umboðs-
ins á íslandi. Samtals fimmtán
Ijósmyndarar fá að bera merki
keppninnar. Þeir senda inn
myndir sem sérstaklega verða
teknar af brúðinni í þessu
skyni. Þar með öðlast hún
möguleiki á að vinna glæsi-
lega Braun hrærivél frá Pfaff
hf. og NO NAME snyrtivörur,
samtals að verðmæti um
33.000 krónur.
í hverjum mánuði verður
valin brúður mánaðarins og
greint frá henni í Vikunni. í lok
ársins verður síðan kjörin
brúður ársins 1991 og fær hún
ferð fyrir sig og brúðgumann til
Parísar á vegum Ferðaskrif-
stofunnar Sögu.
Sams konar keþpni hefur
verið haldin í Bretlandi f
tuttugu ár en nánar verður
sagt frá henni í næsta tölu-
blaði.
VINNINGARNIR
Vinningarnir fyrir brúði mánað-
arins eru glæsilegir. Fyrst er
að nefna BFtAUN Multipractic
UK 40 hrærivél með fjölda
fylgihluta sem gera baksturinn
og matreiðsluna auðveldari og
þægilegri. Þess má geta að
sams konar vél notuðu ís-
lenskir matreiðslumenn í
keppni í Bandaríkjunum fyrr á
þessu ári með góðum árangri.
Verðmæti hrærivélarinnar er
um 17.000 krónur.
NO NAME cosmetic snyrti-
vörutaskan inniheldur fjóra
varaliti, átta kinnaliti, tvær teg-
undir af púðri, tuttugu og þrjá
augnskugga og fjórar gerðir af
„meiki" svo nokkrir hlutir séu
nefndir. j töskunni er einnig
hreinsilína, burstar og augn-
blýantar ýmiss konar. Snyrti-
vörurnar eru I glæsilegri tösku
og munu vinningshafar njóta
handleiðslu Kristínar Stefáns-
dóttur förðunarfræðings við
notkun og samsetningu lit-
anna. Verðmæti töskunnar er
um 16.000 krónur.
Hótel Saga við Hagatorg gefur
brúði mánaðarins kvöldverð
fyrir sig og makann í Grillinu.
Grillið er meðal bestu veitinga-
24 VIKAN 12. TBL. 1991