Vikan


Vikan - 13.06.1991, Side 44

Vikan - 13.06.1991, Side 44
yfirliði, grípandi í blaðakonuna eins og drukknandi maður myndi grípa i hálmstrá. Eftir fréttina fór Weizak og kom aftur með þær fréttir að símaborð spítalans væri rauðglóandi af hringingum til hans. Á því andartaki hringdi síminn. Weizak bölvaði hljóðlega. „Ég sagði þeim að stilla ekki símann upp. Ekki svara, John, ég skal..." En Johnny var búinn að svara. Hann hlustaði, kinkaði síðan kolli. Hann setti hönd yfir símtólið. „Þetta er pabbi minn,“ sagði hann. Hann hiustaði. Brosið á vörum hans dofnaði og þess í stað rann á hann svipur óhugnaðar. „Hvað er að, John?“ spurði Weizak hvasst. „Allt í lagi, pabbi," sagði Johnny næstum hvísl- andi. „Já, Cumberland-sjúkrahúsið. Ég veit hvar það er. Allt í lagi, pabbi." Rödd hans brast. Augun voru þurr en glamp- andi. „Ég veit það, pabbi. Ég elska þig líka. Mér þykir þetta leitt.“ Hlustaði. „Já, það var það," sagði Johnny. „Ég sé þig, pabbi. Já. Vertu sæll.“ Hann lagði símann á, lagði hendurnar yfir aug- un og þrýsti. „Er það móðir þín, Johnny?“ Sam hallaði sér fram, tók aðra höndina frá auganu og hélt henni blíðlega. „Já. Það er móðir mín.“ „Hjartaslag?" „Heilablóðfall," sagði Johnny og Sam Weizak gaf frá sér sársaukahljóð. „Þau voru að horfa á fréttirnar... hvorugt þeirra hafði hugmynd ... svo kom ég ... og hún fékk heilablóðfall. Hún er á sjúkrahúsi. Ef eitthvað hendir pabba núna erum við með þrefaldan leik.“ Hann rak upp hlátur. „Þetta er góður hæfileiki," sagði hann. „Það ættu allir að hafa hann." Hláturinn kom aftur, líkur öskri. „Hversu slæm er hún?“ spurði Sam. „Hann veit það ekki.“ Johnny sveiflaði fótunum fram úr. Hann var aftur kominn í spítalanáttföt og var berfættur. „Hvað heldurðu að þú sért að gera?“ spurði Sam byrstur. „Hvað sýnist þér?“ „Ekki vera fáránlegur. Þú ert ekki tilbúinn til þess, John." Johnny var að leita að fötum í skápnum og fann hvítu skyrtuna og gallabuxurnar sem hann hafði verið í á blaðamannafundinum. „Ég harðbanna þetta, John. Sem læknir þinn og vinur. Ég segi þér það, þetta er brjálæði." „Bannaðu allt hvað þú vilt, ég fer,“ sagði Johnny. Hann hóf að klæða sig. Á andlitinu var þessi fjarhuga svipur sem Sam tengdi ávallt við leiðsludá hans. Sam stóð upp, gekk til hans og lagði höndina á öxl hans. „Þú ollir því ekki, Johnny." Johnny hristi höndina af sér. „Ég olli því sann- arlega," sagði hann. „Hún var að horfa á mig þeg- ar það gerðist." Hann fór að hneppa að sér skyrt- unni. „Þú lagðir að henni að taka lyfin sín og hún hætti því.“ Johnny leit snöggvast á Weizak og hélt síðan áfram að hneppa skyrtunni. „Hefði það ekki gerst í kvöld þá hefði það gerst á morgun, í næstu viku, næsta mánuði..." „Eða á næsta ári. Eða eftir tíu ár.“ „Nei. Það hefðu ekki orðið tíu ár eða einu sinni eitt. Og þú veist það. Hvers vegna er þér svona áfram um að taka þetta á þig? Vegna þessa sjálf- umglaða blaðamanns? Er þetta kannski öfug- snúin sjálfsvorkunn? Langar þig að trúa því að það hvíli á þér bölvun?" Andlit Johnnys afmyndaðist. „Hún var að horfa á mig þegar það gerðist. Nærðu því ekki? Ertu svo djöfull vitlaus að þú náir því ekki?" „Hún var að undirbúa erfiða ferð, alla leið til Kaliforníu. Á eitthvert málþing. Mjög tilfinninga- hlaðið mál, eftir því sem þú hefur sagt mér. Þetta hefði áreiðanlega gerst. Heilablóðfall er ekki þruma úr heiðskíru lofti." Johnny hneppti að sér buxunum og settist síð- an niður eins og honum væri um megn að gera meira en að klæða sig. Hann var enn berfættur. „Já, það getur verið að þú hafir rétt fyrir þér,“ sagði hann. „Hann sér skynsemina í þessu! Guði sé lof!“ „En ég verð samt að fara, Sam.“ Weizak fórnaði höndum. „Og gera hvað? Hún er í höndum lækna og Guðs. Þannig er staðan. Þú hlýtur að skilja það betur en nokkur annar." „Pabbi mun þarfnast mín,“ sagði Johnny lágt. „Ég skil það líka.“ „Hvernig ætlarðu að komast? Það er nærri komið miðnætti." „Með rútu. Ég tek leigubíl yfir að Greyhound- stöðinni." „Þú þarft þess ekki,“ sagði Sam. „Ég skal aka þér þangað.“ Johnny leit upp á hann. „Myndirðu gera það?“ „Ef þú tekur inn væga róandi töflu, já.“ „En konan þín ... “ Hann gerði sér grein fyrir því að það eina sem hann vissi með vissu um einkalíf Weizaks var að móðir hans bjó í Kaliforn- íu. „Ég er fráskilinn," sagði Weizak. „Læknir þarf að vera úti öllum stundum. Konan mín sá rúmið sem hálftómt frekar en hálffullt. Svo hún fyllti það með hinum ýmsu mönnum.11 „Það var leitt," sagði Johnny vandræðalegur. „Þú eyðir allt of miklum tíma í að vera leiður yfir hlutunum, John.“ Andlit Sams var blíðlegt en aug- un hörkuleg. „Farðu í skóna." 12. KAFLI » j * Johnny horfði á stjörnurnar á leiðinni milli sjúkra- húsanna tveggja. Hann sofnaði og dreymdi móð- ur sína. „Gerðu mig heilbrigða, Johnny," sagði móðir hans í draumnum. Hún var í betlaralörfum. Hún skreið í áttina til hans yfir steinlagða götu. Andlit hennar var hvítt. Blóð rann úr hnjánum. Hvítar lýs sáust í þunnu hárinu. Hún hélt titrandi höndum sínum að honum. „Máttur Guðs er að verki í þér,“ sagði hún. „Það er mikil ábyrgð, Johnny. Þú verð- ur að vera hennar verðugur." Hann tók hendur hennar í sínar og sagði: „Hverfið úr þessari konu, andar." Hún stóð upp. „Heilbrigð!" hrópaði hún. Röddin var full ógnvekjandi sigurgleði. “Sonurminn hefur gert mig heilbrigða! Mikil eru verk hans é jörð- unnif" Hann reyndi að mótmæla, segja henni að hann vildi ekki gera fólk heilbrigt eða tala tungum, spá í framtíðina né finna týnda muni. Hann reyndi að segja henni það en tungan vildi ekki hlýða skipun- um heilans. Svo var hún farin niður götuna, rödd hennar gjallandi eins og lúður: „Frelsari! Frelsari!" Og sér til hryllings sá hann að bak við hana höfðu verið þúsundir annarra, kannski milljónir, allir lemstraðir eða vanskapaðir. Þau teygðu úr sér kílómetrum saman, þau myndu bíða þolin- móð, þau myndu drepa hann með sinni þöglu, kúgunarkenndu þörf. Hann reyndi að segja þeim að hann gæti hvorki gert þau heil né frelsað þau en áður en hann gat opnað munninn var sá fyrsti búinn að leggja hönd á hann og var að hrista hann. En þetta var hönd Weizaks á handlegg hans. „Hvar erum við?“ spurði hann loðmæltur. „Við Cumberland-sjúkrahúsið," sagði Sam. „Ertu tilbúinn að fara inn?“ „Já,“ sagði Johnny. * 2 * Herb kom fram ganginn á móti þeim og Johnny sá að faðir hans var í gömlum buxum, sokkalaus í skónum og á náttskyrtunni. Það sagði Johnny heilmikið um hve snögglega þetta hefði gerst. Það sagði honum meira en hann vildi vita. Johnny tók utan um hann og Herb brast í grát. Hann kjökraði upp við skyrtu Johnnys. Weizak sneri sér undan og fór að skoða myndirnar á veggjunum. Herb jafnaði sig og feðgarnir gengu að lítilli bið- stofu og settust. „Er hún ... ? „Hún er á niðurleiö," sagði Herb. Hann virtist rórri. „Með meðvitund en fallandi. Hún hefur verið að spyrja eftir þér, Johnny. Ég held hún hafi verið að bíða eftir þér.“ „Þetta er mér að kenna,“ sagði Johnny. „Þetta er allt mér að k ... “ Honum krossbrá við að finna sársaukann í eyr- anu og hann starði furðu lostinn á föður sinn. Herb hafði þrifið í eyra hans og snúið fast upp á það. Þetta hafði verið refsing við alvarlegum brotum í gamla daga. Johnny mundi ekki til þess að snúið 44 VIKAN 12. TBL. 1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.