Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 56
TEXTI OG LJÓSMYNDIR: ÞORSTEINN ERLINGSSON
Roskinn Þjóöverji getur fuglunum við eitt síkja Hamborgar. Borgin er tengd saman með hvorki meira né minna en 2400 brúm.
HAMBORG
BORG MEÐ ÖLLU
Hamborgarar fögnuðu ákaft er Flugleiðir hófu formlega áætlunar-
flug til borgarinnar. Enda dugði ekki annað en rauður dregill undir
fyrstu farþegana er þeir gengu til og frá borði.
aö var í byrjun maí að
Flugleiðir hófu að fljúga
beint til Hamborgar og
fljúga nú þangað tvisvar í viku.
Eru þaö mikil gleðitíðindi fyrir
þá sem unna þýsku borgarlífi
eins og það gerist best, hvort
sem varðar menningu, afþrey-
ingu og viðskiptalíf eða allt í
senn. Blaðamaður Vikunnar
brá sér yfir hafið með glæsileg-
um farkosti Flugleiða til að
skoða fyrirheitna landið.
Hjá þeim sem lítt þekkja
borgina kemur höfnin og gleði-
hverfið fræga oftast upp í hug-
ann þegar minnst er á
Hamborg. Þessi borg fyrrum
Hansakaupmanna hefur þó
margt fleira að bjóða en stórt
vöruafgreiðslusvæði við höfn-
ina og St. Pauli, hverfi lífs-
nautnanna.
Engin borg Evrópu státar af
fleiri almenningsgörðum,
gróðursælum útivistarsvæðum
og friðlýstum náttúruverndar-
svæðum. Það er meðal annars
að þakka Alster vatnasvæðinu
sem gengur í gegnum borgina
miðja og ánni Elbe sem tengist
höfninni þar sem hún rennur
sunnan við borgina. Þetta gerir
það að verkum að andrúmsloft-
ið í miðri borginni er blandað
frískri sjávargolunni og það
kunna Islendingar og fleiri ör-
ugglega vel að meta.
Borgin er sundurskorin þvers
og kruss af síkjum. Mismun-
andi hlutar hennar eru tengdir
saman með hvorki meira né
minna en 2400 brúm og má
segja með sanni að þetta
séu Feneyjar Þýskalands.
Þess má til gaman geta að
Feneyjar státa aðeins af 450 og
Amsterdam aðeins fleiri eða
um 600.
Borgin þekur um 755 ferkíló-
metra og hana byggir rúmlega
ein og hálf milljón manna.
Alstervatnið er paradís fyrir
siglingaáhugafólk og kjörið að
fara í útsýnissiglinu um vatnið
þar sem virða má fyrir sér
hverja glæsibygginguna á fæt-
ur annarri með tilheyrandi
skrúögörðum. Þar má sjá
einkavillur, sendiráð, alþjóða-
hótel og aðrar byggingar um
leið og fjölbreytt fuglalífið er
skoðað.
Höfnina verða einnig allir að
skoða því hún er Hamborg það
sama og Eiffelturninn er París
og Tower er London. Hún er
stærsta höfn Þýskalands. Þar
fara um þrettán þúsund úthafs-
skip ár hvert, hvaðanæva úr
heiminum.
Borgin sjálf er iðandi af lífi og
hrein paradís fyrir þá sem lang-
ar að versla. Hún státar af flest-
um yfirbyggðum verslunargöt-
um í Evrópu. Þar er Ijúft að vera
sé fólk svo óheppið að veður sé
ekki sem ákjósanlegast til úti-
veru. Þarna má finna allar vörur
sem hugurinn gimist, allt frá
dýrindis skartgripum niður í
sælgæti götusalanna. Að sjálf-
sögöu eru þessi svæði krydduð
með kaffihúsum eins og þau
gerast best.
Yfir miðborgina gnæfir ráð-
húsið sem er byggt í endur-
reisnarstíl á árunum 1886 til
1897. Þar hefur borgarstjórnin
aðsetur sitt og ef öll hin glæsi-
legu herbergi þess, sem eru til
sýnis, eru talin eru þau fleiri en
í sjálfri Buckinghamhöll.
Turn ráðhússins og turnar St.
Katherinen, St. Petri, St. Jacobi
og St. Michaelis kirknanna og
að sjálfsögðu hinn 256 metra
hái sjónvarpstum eru þau kenni-
leiti sem best sjást þegar horft
er yfir borgina í kvöldsólinni.
Því miður hefur mikið af
merkum byggingum horfið af
sjónarsviðinu í gegnum aldimar
en þó aldrei eins margar og (
borgarbrunanum mikla árið
1842 og í seinni heimsstyrjöld-
inni.
Menningarlífið blómstrar f
þessari lifandi borg. Meðal þess
sem gæti satt hungur listunn-
enda er að fara á sýningar í
Ríkisóperunni sem hýsir hinn
fræga John Neumeier ballett.
Heimsækja má allar stærðir og
54 VIKAN 12. TBL.1991