Menntamál - 01.09.1936, Blaðsíða 53
MENNTAMÁL
131
meiru en hæfileikar. Það verður hverjum að list, sem
hann leikur. Umfram allt, reynið að gera ykkur sem ljós-
asta grein fyrir hæfileikum ykkar og áhugamálum. Þá
l'áið þið takmark til að stefna að. Þegar hugur fylgir máli
og störfum, þá er lífið ekki lengur tómlegt eða tilgangs-
laust. „Þeklctu sjálfan þig“, sagði gamli spekingurinn. Það
er góð regla fyrir námsmann, sem er jafnfrjáls og nú er
raun á um unglinga. Það er ekki tilgangur kennaranna,
að gera mann í sinni mynd, heldur að reyna að koma
unglingnum til þess þroska, sem honum er áskapað að
geta náð, og um það valdið þið nemendurnir sjálfir mestu.
III.
Þið fáið stundaskrá þegar þið komið í skólann. En sú
stundarskrá er ónóg. Þið þurfið að gera ykkur aðra töflu
við ykkar eigin liæfi. Þið skuluð reyna fyrir ykkur fyrstu
vikurnar og breyta henni, þar til þið finnið að hún er
við ykkar hæfi — og fylgja henni svo! Stundarskrá skól-
ans er miðuð við daga. Þeir eru misþungir. Það er erfitt
að koma öðru við. En ykkar einkatöflu getið þið miðað
við vikuna, og fellt úr og bætt við svo dagarnir verði
nokkurnveginn jafnir. Þó er bezt að hafa laugardagana
og sunnudagana frjálsa. Það eru verðug laun í lok góðr-
ar viku. Það hjálpar til að halda starfsskrána, að vera
alfrjáls einstöku sinnum. Hugurinn þarf einstaka sinnum
að reika. Félagsþarfir, umgengni og liollar nautnir heimta
sinn skerf.
Á einkatöflunni skiftið þið tímanum milli námsgreina.
Átta stunda starf samtals, daglega, er engum ofætlun.
Og níu stundir skemma engan, sem er fullhraustur. Þá
eru 3—4 stundir til heimastarfs, og þessum tíma þarf
að skifta réttvíslega milli viðfangsefna. Niðurjöfnunin fer
eftir því, hve erfiðar námsgreinarnar reynast ykkur. Það
er ekki víst að þær greinar, sem þyngstar eru, þurfi lengri
tíma en aðrar, ef rétt er raðað. Sjálfsagt er að byrja á
9*