Menntamál - 01.12.1936, Síða 9
MENNTAMÁL
167
Nú skal vikið nokkuð að rannsóknum þessum. Áður
en eg ræði um þær eiginlegu uppeldisfræðilegu rannsókn-
ir vil eg drepa á tilraunir gerðar í sálfræðilegum rann-
sóknarstofum á seinni liluta 19. aldar og í byrjun þeirr-
ar 20. Þessar rannsóknir voru gerðar eingöngu í sálfræði-
legum tilgangi, en liafa samt sem áður feikna þýðingu,
sem grundvöllur undir uppeldisfræði-tilraunimar, er síð-
ar voru gerðar. Fj7rstu rannsóknirnar lutu einkum að því
á livern hátt menn skynjuðu orðin, þegar lesið er. Um
1844 þóttist Valentinus komast að raun um, að menn
skynjuðu þrjá stafi í einu, en nokkuru síðar færði Catell
við háskólann í Leipzig sterkar líkur að því, að menn
skynjuðu orð og oft heilar setningar í senn fremur en
einstaka stafi. Þessar athuganir Catello voru hrátt stað-
festar af fleiri sálfræðingum og fullsannaðar, t. d. með
því, að sýnt var fram á, að menn gætu þekkt orð, jafnvel
þótt liver einstakur stafur væri of lítill til þess að hægt
væri að greina hann út af fyrir sig. Þá voru einnig færðar
sönnur á það, að menn skynjuðu yfirleitt fleiri stafi
>og orð í senn, ef lesefnið væri áður lcunnugt.
En langmesta athygli vakli uppgötvun Javals í háskól-
anum i Paris 1879. Hann varð fvrstur manna til þess að
veita því athvgli, að þegar lesið er, hreyfast augun i sveifl-
um eða rykkjum eftir linunni með hvíldum á milli. Javal
hafði mjög ófullkomin tæki. Allt um það varð hann margs
áskynja, sem öðrum hafði skotizt yfir. Hann sá t. d. fyrir,
það er síðar varð almennt rannsóknarefni, og þykir nú
nokkurnveginn óyggjandi, að lesturinn, skynjun orðanna
og stafanna, fer aðallega fram meðan augun eru
kyrr, en lítið eða ekki meðan á hreyfingunum stendur. En
vegna hinna ófullkomnu tækja skjátlaðist Javal í ýmsum
atriðum t. d. í því, að hann taldi að augun tækju hvíld
reglulega við 10. livern staf. — Þessar uppgötvanir Javals
um augnahreyfingarnar urðu upphaf að mörgum öðrum
rannsóknum, t. d. ályktaði Sandholt, er hélt áfram rann-