Menntamál - 01.12.1936, Síða 41
MENNTAMÁL
199
liægt að rekja, en á því skal byrjað, að 1934 var stofn-
aður menningarsjóður K.E.A. I stjórn sjóðsins eiga sæti
Vilhjálmur Þór, Bernharð Stefánsson, Einar Árnason,
Snorri Sigfússon og Þórarinn Eldjárn. Tilgangur menn-
ingarsjóðs er: „að efla fræðslu í félags- og samvinnu-
málum og styrkja framkvæmdir í félaginu, sem til
menningar horfa.“ Úr sjóðnum hefir þegar verið greitt:
Til sundlaugar í Hrafnagilshreppi 1000 kr., lil kvenna-
skóla á Laugalandi 5000 kr., kostnaður við heimboð
til allra barna, sem tóku burtfararpróf úr öllum barna-
skólum við Eyjafjörð vorið 1935 ca. 1000 kr. Auk þess
hefir verið heitið að greiða úr sjóðnum til sjúkrahúss-
byggingar á Akureyri 20.000 kr., og loks þær 50.000 kr.
til byggingar lieimavistarskólans, sem áður er getið.
Heimavistarskólamálið mun fyrst liafa komið opin-
berlega til umræðu í stjórn menningarsjóðs. Munu all-
ir stjórnarmenn bafa lagt þar gott til mála, sömuleið-
is var málið samþyklct einum rómi af öllum stjórnar-
mönnum Iv.E.A. En fyrst og fremst verður að þakka
framkvæmdarstjóra félagsins, Vilhjálmi Þór, liinar rögg-
samlegu og rausnarlegu framkvæmdir í þessu máli.
Vilhjálmur Þór.
Einar Árnason.