Menntamál - 01.12.1936, Side 48
206
MENNTAMÁL.
„Den praktiske Mellemskole".
Foredrag holdt i Reykjaviks Lærerforening d. 17. Oktober 1936,
Af Kommunelærer Jens Möller.
Jens Möller, höfundur
eftirfarandi greinar, er kenn-
ari við Skolen ved Skellet,.
iveggja ára gamlan tilrauna-
harnaskóla, sem talinn er í
fremstu röð harnaskóla í Dan-
mörku. J. Möller er hér í
kennaraskiptum. Hefir hann
dvalið á Akureyri, ísafirði,
Reykjanesi, Laugarvatni og í
Reykjavík. Hann hefir flutt
fyrirlestra, sýnt skuggamynd-
ir, nemendum og kennurum,
og kynnt sér vinnubrögð is-
lenzkra skóla. Hr. Möller hefir
hvarvetna getið sér ágætan
orðstír fyrir prúðmannlega og
drengilega framkomu. Þegar
hr. Möller fór norður til Ak-
ureyrar, var það fastmælum
Lundið, að Menntamál hirtu þessa grein. Hafði ritstj. gert ráð-
stafanir til þess, að hún yrði þýdd, en þegar þar að kom, ósk-
aði höf. eindregið eftir, að greinin birtist á frummálinu. Vegna
þess, að hér var um óvenjulegt formsatriði að ræða, þótti rétt,
að útgáfustjórnin tæki afstöðu til þess. Féllst hún á að veita
þessa undantekningu af eftirtöldum ástæðum: a) Ritstj. Mennta-
mála hafði óskað eftir greininni. b) Ætla mál, að allir kaupend-
ur Menntamála lesi dönsku. c) Höf. er hér sem fulltrúi starfs-
bræðra vorra í erlendu ríki, er því þessi eftirlátssemi jafnframt
kurteisisvottur við þá. d) Annarstaðar á Norðurlöndum birta
tímarit þráfaldlega greinar á máli annarar Norðurlandaþjóðar.
Loks viljum vér nota tækifærið og þakka hr. Möller fyrir kom-
una og ágæta viðkynningu, og biðjum liann að flytja starfsfélög-
um vorum í Danmörku beztu kveðjur og árnaðaróskir. Ritstj.