Menntamál - 01.12.1936, Síða 67
menntamál
225
synlegir leiðarsteinar, en árangur skólastarfsins veltur
fyrst og fremst á persónuleik kennarans, áhuga hans,
festu og hugkvæmni.
Starfskrá skólanna og verkefni verða að vera síung,
þau verða eðlilegast til i þvi samstarfi kennaranna, sem
hinum væntanlegu námsstjórum er ætlað að leiða. Eg
hefi ekki hirt um að láta verkefni i einstökum grein-
um fylgja þessum tillögum. Vil eg vísa til tveggja ágætra
bóka, sem gefnar hafa verið út að tillilutun fræðslumála-
stjórnarinnar, Leiðbeiningar um vinnubókargerð og
Skrift og skriftarkennsla. Væri æskilegt, að fleiri slikar
bækur væru gefnar út, t. d. i handavinnu, íþróttum og
leikjum, og leiðbeiningu um söfnun náttúrugripa og
fræðslu i ýmsum hagnýtum efnum.
Reykjanesskóla, 17. júní 1936.
Aðalsteinn Eiríksson.
Fpiðarverðlaun.
Heimssamkeppni Sögufélagsins nýja. (The Ne~w History
Society, 132 East 65th Street, New York).
Nýja Sögufélagið í New York heitir alls 5.000 dollara verð-
launum fyrir beztu ritgerðir um efnið: „Hvernig getur fólk jarð-
arinnar komið á allsherjar afvopnun*1?*,) Fyrstu heimsverðlaun
eru 1000 dollarar, 2. heimsverðlaun 600 dollarar, 3. heimsverð-
laun 400 dollarar. Sex verðlaun, 200 dollara, verða veitt eftir
álfum fyrir beztu ritgerðir frá: Evrópu, Asiu, Afriku, Ástraliu
og Nýja-Sjálandi, Mið- og Suður-Ameríku, Norður-Ameriku. Þá
er loks 1800 dollarar, sem á að úthluta í 50 dollara verðlaun-
um til þátttakenda frá einstökum þjóðum, og getur hver þjóð
fengið fleiri en ein verðlaun, ef svo ber undir. Samkeppnin hefst
1. nóv. 1936, og er úti 1. mai 1937. Allir geta tekið þátt i sam-
keppninni, hvar sem þeir eru búsettir á hnettinum.
*) Á ensku: „How can the people of the world achieve uni-
versal disarmament?"
15