Menntamál - 01.12.1936, Page 68
MENNTAMÁL
22 G
„Ilfflur daganna“.
Snemma í fyrrahaust kom
hér á bókamarkaðinn ný
skáldsaga eftir ungan og ó-
þekktan höfund. Sagan hét:
„Bræðurnir í Grashaga“, en
höfundur hennar Guðmundur
Daníelsson, og er barnakenn-
ari norður í landi. Skömmu
eftir útkomu bókarinnar var
það, að maður spurði mann:
„Hefir þú lesið Bræðurna í
Grashaga?“ Þessi saga vakti
sem sé töluvert mikla athygli.
Hún fékk sína dóma, bæði í
samtali manna og eins í blöð-
um og tímaritum. Þótt þeir
dómar væru mjög ósam-
hljóma, bar þeim öllum sam-
an um eitt: Hér var kominn
fram nýr og eftirtektarverðnr
höfundur, með óvenjulega
skemmtilega frásagnargáfu og
stílleikni. Hitt leyndist þó
engum, að höfundur sögunnar var undir mjög sterkum áhrif-
um frá Laxness. Sagan liafði skrifast í eldmóði þeirrar hrifn-
ingar, sem verk Laxness höfðu vakið hjá höfundinum. Beri mað-
ur saman lokaþátt eða síðustu blaðsiðu Bræðranna i Grashaga
og síðustu blaðsíðu „Fuglsins í fjörunni“, þá leynir sér ekki
eftirlíkingin. Blærinn er hinn sami. Stefið um rjúpuna i runnin-
um minnir óþægilega á stefið um fuglinn í fjörunni. Á þetta at-
riði er þó ekki drepið hér, sem hið sannasta dæmi eftirlíking-
ar, slík dæmi má finna á næstum hverri opnu bókarinnar. Þvi
miður. En þrátt fyrir þetta varð þó öllum ljóst, að Guðmundur
Daníelsson myndi i eigin brjósti eiga nóg af skáldlegum hug-
myndum og þótti því öllum, er söguna lásu, hún mjög eftirtekt-
arverð. — Síðan leið eitt ár. Nú í haust kom út ný s’aga frá
hendi sama höfundar. Hún er framhald liinnar sögunnar og ber
nafnið: „Tlmur daganna“. Aðalpersóna þessarar sögu er drengur