Menntamál - 01.12.1936, Page 74
232
MENNTAMÁX,
af stokkunum: „Hinni þjóðlegu stofnun uppeldisvísinda Bolivíu.“
Auk rannsókna fer þar einnig fram sérfræðikennsla kennara við
barnaskóla og æSri skóla. Á þessu óri var framlag til reksturs
stofnunarinnar aukið úr 76.000 bolivianos i 170.000 bolivianos,
og auk þess veitt til nýrra bygginga 230.000 bolivianos.
Tímaritið Antorcha hefir stofnað til rannsóknar ó þvi, með
hvaða hætti uppeldi Indíóna verði helzt endurbætt.
(Antorcha No. 1, marz 1936).
DANMÖRK.
Útiskólar — dvalarstaður fyrir börn á ferðalögum. Árið 1930
var í fyrsta sinni gerð tilraun með skólasel i Danmörku, frá
skólanum i Hostrup. Tilraun þessi heppnaðist svo vel, að nú í
ár er gert ráð fyrir föstum skóla undir beru lofti á eyjunni
Röm, þar sem skiptist á bóklegt nám, leikir og böð.
Freigátunni „Jylland“, sem er fræg síðan í orustunni við Helgo-
land, var lagt við festar á höfninni í Kaupmannahöfn og hátíð-
lega vigð af ríkisstjórninni 9. maí, en þann mánaðardag var
orustan háð. Freigátunni hefir verið breytt í gististað og dval-
arstað, er tekur á móti unglingum og skólabörnum utan af landi,
sem koma i heimsókn til Kaupmannahafnar. Þrjú hundruS börn
geta matast í einu. Næturgreiði er 50 aurar fyrir barn. SkipiS
er raflýst, hefir stóra matsölubúð, hjúkrunarstöð o. fl.
(Folkeskolen, apríl—maí 1936.)
ENGLAND.
Þrjú þúsund nemendur í kennaraskólum viðs vegar í Englandi
sendu áskorun til neðri deildar enska þingsins, um hækkun skóla-
skyldualdurs til 15 ára, án undanþágu, t. d. vegna vinnu.
Einnig, að nemendafjöldi í hverjum bekk i barnaskólum yrði
eigi meiri en 40 og í hærri skólum eigi meiri en 30 í hverjum bekk.
(The Schoolmaster, maí/júní 1936).
FRAKKLAND.
Hinn 10. júní fór framkvæmdastjórn franska kennarasambands-
ins á fund kennslumálaráðherrans, hr. Jean Zay. Bar stjórnin
fram ýmsar óskir sínar í skóla- og kennslumálum, og kvaðst ráð-
herrann fús til þess að framkvæma helztu óskir kennarasam-
bandsins, t. d.:
Hækkun á launum, er lækkuð voru 1935.
Lausn frá störfum 55 ára í staðinn fyrir 60 ára.
Kennarar, sem hafa verið sviptir embætti vegna stjórnmála-
skoðana, fái stöður sinar aftur.
YiSurkenndur réttur opinberra starfsmanna til félagssamtaka.