Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 12

Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 12
138 MENNTAMÁL Snorri að kennsla þeirra hafi bæði orðið sér til gagns og ánægju, og meðal annars kveðst hann hafa komizt að raun um, að litlu kennurunum hafi gengið betur en sér að koma smábörnunum í skilning um það, sem þeim þótti torskilið. Jón Þórarinsson, fræðslumálastjóri, spurði ýtarlega eftir þessum þætti starfsins hjá Snorra og litlu kennurunum og hafði jafnan hina mestu ánægju af. Sumir þessara litlu kennara sögðu Snorra síðar, að þá hafi þeir mest lært í skólanum, er þeir lögðu sig mest í líma við að kenna smá- börnunum. En skólastjóranum var hins vegar nokkur létt- ir að kennslu þeirra. Mun þessi nýjung í barnakennslu vera alveg einstök hér á landi og er vissulega eftirtektarverð. Önnur nýjung í flokki skólabarna á Flateyri vakti þó enn meiri athygli. Snorri hafði ekki verið þar nema eitt eða tvö ár, þegar hann tók upp á því að láta börnin halda skemmtisamkomu fyrir almenning einu sinni á vetri. Á samkomum þessum komu þau fram með ýmis skemmti- og fræðsluatriði, sungu, lásu upp, sýndu hringdansa o. fl. Heldur uggvænleg mun mönnum hafa þótt þessi uppátekt skólastjórans, þegar fréttist í fyrsta skiptið, að hann ætl- aði að láta börnin hafa samkomu fyrir fullorðna fólkið og annast þar sjálf öll skemmtiatriðin. Menn spurðu hvort líkindi væru til þess, að nokkur mynd yrði á þessu. En uggurinn hvarf eftir fyrstu samkomuna. Það var einmitt mesti myndarbragur á frammistöðu barnanna, og menn skemmtu sér hið bezta. Vinsælli samkomur voru ekki haldnar í þorpinu. Það mátti og til nýlundu teljast, að auk þess, sem eldri venju var haldið, að börnin læsu morgunbænir með söng fyrir og eftir, hélt Snorri oft uppi húslestrum á sunnu- dögum í skólahúsinu, með aðstoð barnanna. Las skóla- stjóri lesturinn, en börnin sungu jafnan á undan og eftir og lásu oft sjálf jólaguðspjallið. Þessir húslestrar voru vel þokkaðir og mjög sóttir af Flateyringum, enda öllum heimilt að hlýða á þá.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.