Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 26
152
MENNTAMÁL
óbrigðulla en allt annað, sem leitazt er við að nota til sið-
fágunar, sjálfsumvöndunar og drengilegs manndóms æsku-
manna. —
En starf Snorra hefur eltki einungis verið bundið við
barnaskólann á Akureyri, þessi ár, sem hann hefur veitt
honum forstöðu. Árið eftir að hann tók við skólastjórn
stofnaði hann með tilstyrk samkennara sinna og annarra
stéttarbræðra við Eyjafjörð Kennarafélag Eyjafjarðar.
Hafa jafnan verið í félagi þessu allir starfandi kennarar
í Eyjafjarðarsýslu, og hefur það verið athafnasamt og
mun hafa unnið fræðslumálum sýslunnar mikið gagn og
orðið kennurum þar með ýmsum hætti til atbeina og
hjálpar.
3. Niðurstöður.
Hér að framan var að því vikið, að vert væri að reyna
að gera sér nokkra grein fyrir því, hvers konar ráðum og
aðferðum Snorri hafi beitt til þess að ná þeim árangri
skólastarfsins, er orðið hefur lofs- og undrunarefni
þeirra, er til þekkja. Með hliðsjón á þessu hefur verið
reynt að greina að nokkru frá stjórn og starfsháttum
barnaskólans á Akureyri, enda þótt þess sé eigi að dylj-
ast, að með þeirri greinagerð er engin fullnaðarskýring
fengin á hinum óvenjulega starfsárangri og áhrifavaldi
skólastjórans. Tvennt, sem enn er ónefnt, kann þó að fylla
að nokkru upp í skarðið eða bæta að minnsta kosti úr því,
sem ávant er um skýringar, og skal nú þessara tveggja
atriða getið hér með nokkrum orðum.
í fyrsta lagi skal þess þá getið, að Snorri hafði fengið
allgóða æfingu í því að stjórna mönnum við verk, áður
en hann hóf skólastjórn sína í barnaskólunum. Hann
hafði verið verkstjóri á þremur höfuðbólum, Völlum 1
Svarfaðardal, Stærra-Árskógi á Árskógsströnd og Hól-
um í Hjaltadal, sumarlangt á hverju. í verkstjórn sinni