Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 37
MENNTAMÁL
163
fjóra háskóla, og væri nú uppi krafa um að stofna þann
fimmta. Hann minnti á, að David Stow hefði stofnað fyrsta
kennaraskóla landsins í Glasgow, og nú væru þeir sjö
að tölu og útskrifuðu árlega 1200 kennara. Hann óskaði
félaginu heilla og fulltrúum gleðilegrar dvalar í Glasgow.
Þá talaði dr. M’Allister forstöðukona fyrir Glasgow-
deild kennarafélags Skotlands. Hún bar kveðju frá kenn-
urum borgarinnar, kvað þá fagna því, að hér væri haldinn
stofnfundur þessara alheimssamtaka. Þeir stæðu allir að
baki ungfrú Pringle, sem hefði lagt mikið og gott starf
til þess að undirbúa þessa ráðstefnu. Hún kvað kennara
borgarinnar alla á einu máli um, að þetta félag mundi
ekki aðeins bera gæfu til að vinna að alheimsfriði, heldur
mundi það og verða hinn mikli könnuður og safnandi alls
hins ágætasta í fræðslu og uppeldismálum, vekja á því at-
hygli og leiða það til framtíðarþróunar. Slík væri framtíð
félagsins, samkvæmt skoðun kennaranna þar í borginni.
1 þriðja lagi, þar sem ekkert félag gæti orðið ágætara en
þeir karlar og þær konur, sem að því stæðu, þá yrðu kröf-
ur hinnar nýju stofnunar að ná til hvers einstaks kennara
á öflugan hátt. Hún kvað þá trúa því, að með því að vinna
saman, að því, sem þeir álitu köllun sína, gætu kenn-
arar stofnað og innleitt nýja stefnu grundvallaða á tveimur
einföldum atriðum: frelsi hverrar mannveru, og virðingu
fyrir tilveru hennar. Til þess yrðu þeir að treysta á siðferð-
isþrótt og drengskap hvers einstaks kennara innan sam-
bandsins. Loks óskaði hún þeim í nafni félags síns gæfu
og gengis, og að þeir mættu finna hér straum félags-
anda og skilnings eins sterkan og strauminn í ánni Clyde.
Vegna skorts á slíku hefði mörg ráðstefnan verið hindruð.
Þá hélt dr. William Carr ræðu fyrir hönd félagsins.
„Félag vort er ungt, en ákveðið og vongott. Hinn mikli
áhugi ykkar fyrir þessari ráðstefnu virðist fyrirbæri þess,
að viðleitni okkar muni reynast giftudrjúg.
Starf kennara er nú mjög að afla sér vaxandi viðurkenn-