Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 15

Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 15
MENNTAMÁL 141 Snorra Sigfússyni ... Og um framkomu barnanna bér í bænum má það segja, að hún hefur stórum batnað hin síðari árin, og sennilega má þakka það barnaskólanum eingöngu.“ En Akureyringar eru alls ekki einir um það að lofa stjórn barnaskóla bæjarins. Það mun hafa verið um svipað leyti og ofannefnd grein birtist, að Valtýr Stefánsson ritstjóri kom til Akureyrar, skoðaði skólann og muni hans og varð undrandi yfir því að sjá skólaborðin og annað fleira húsgagna, sem ekkert sá á. Skrifaði hann grein um þetta í „Morgunblaðið“, en hún er því miður ekki við höndina. Nokkru síðar skrifaði Pétur Sigurðsson rithöfundur grein um skólann í „Vísi“. Dáðist hann þar að allri um- gengni í skólanum og stjórnseminni, sem þar ríkti. Kvaðst hann oft vera gestur á Akureyri, en aldrei hafa séð þar ósiðlegt athæfi til barna. Og í opnu bréfi til Snorra í „Morgunblaðinu“ 10. sept. 1937, þar sem hann meðal ann- ars vill fá Snorra til að skrifa um reynslu sína og kenna öðrum ráð og vænlegar aðferðir, stendur þetta: „Mér er kunnugt um það, að þú hefur náð þeim bezta árangri, sem fengizt hefur við barnakennslu hér á landi í seinni tíð. Aðrir hafa náð góðum árangri, en fram úr þínum skóla hafa þeir ekki farið. Ég hef fengið upplýsing- ar um það, að lögreglan þarf ekki að skipta sér af afbrota- börnum á Akureyri. í sex ár hef ég komið einu sinni og tvisvar á ári til Akureyrar og oft dvalið þar dögum saman. Ég fer jafnan mikið um bæinn, en aldrei hef ég séð ljóta eða ókurteisa framkomu barna á Akureyri . . . Á ýmsum stöðum hef ég séð lofsverða umgengni í skólum, en barna- skólann á Akureyri tel ég ágæta fyrirmynd í þeim efnum. Hann hefur líka fengið þann vitnisburð, bæði af hérlend- um og erlendum mönnum. Mér hefur verið sagt það á Akureyri, að ef þú nefndir það við börnin í skólanum að fenna sér ekki á skíðum eða sleðum eftir vissum götum i

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.