Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 16

Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 16
142 MBNNTAHÁL bænum, þá kæmi varla fyrir, að börn óhlýðnuðust því, og mundi hver lögregla vera ánægð með þann árangur." — I ágústmánuði 1936 kom hingað til lands danskur sendi- kennari frá skólum Kaupmannahafnar, Jens Möller að nafni. Hann var kennari við tilraunaskóla einn í Kaup- mannahöfn, er settur hafði verið á stofn að tilhlutun Borg- bjergs, fyrrum kennslumálaráðherra Dana. Jens Möller var hér nokkra mánuði, ferðaðist talsvert um landið, en hafði lengsta viðdvöl í Reykjavík og á Akureyri. Hinn 30. nóv. 1936 birtist í „Alþýðublaðinu" viðtal við Jens Möller, er þá var nýkominn til Reykjavíkur úr ferða- lagi um landið. í þessu viðtali segir Jens Möller meðal annars: „Tilgangurinn með för minni er sá, að kynna mér ís- lenzk skólamál og skýra íslenzkum skólamönnum frá hin- um nýstofnaða tilraunaskóla okkar Dana ... Skólarnir á Akureyri eru ágætir, og skólamenn, eins og Snorri Sigfússon, eru því miður, fágætir. Hann er af- burðamaður á sínu sviði. Mér fannst ég sjá áhrif hans í framkomu allra barna, er ég mætti þar ...“ Annar sendikennari danskur, Fr. Braae Hansen, er seinna dvaldi um skeið hérlendis, komst að svipaðri nið- urstöðu um Akureyrarbarnaskólann. Eftir heimkomu sína flutti hann fyrirlestur í Haderslev. Minntist hann þá ásamt fleiru á lýsisgjafirnar, sem ættu sér stað í barnaskólunum á íslandi, en mundu óþekktar annars staðar á Norðurlönd- um. Kvað hann lýsisgjafirnar vissulega til fyrirmyndar, enda væru þær upphaflega komnar frá Akureyri, en þar væri nú mesti fyrirmyndarbarnaskólinn. — Hér verður nú numið staðar með tilvitnanir í umsagnir merkra manna, sem veitt hafa stjórn og uppeldisáhrifum skólastjórans á Akureyri nána athygli. Að vísu er meira af sama tæi í pokahorninu, en varla þörf á að tína það fram; því að ofannefndar umsagnir, sem allar leggjast á sömu sveifina, ættu að gera mönnum sæmilega ljóst,

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.