Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 20

Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 20
146 MENNTAMÁL og kennurum að skyldu, ef snurða hljóp á þráðinn milli þeirra og barnanna, að heimsækja foreldra þeirra, og brást þá ekki, að snurðan var strokin af. Þessar og þvílíkar tilraunir til samstarfs og samstill- ingar uppeldisáhrifa heimila og skóla munu, er þær hóf- ust við barnaskólann á Akureyri, hafa verið nokkuð sér- stakar á vettvangi íslenzks skólastarfs, hvað sem nú kann að mega segja. En án þessara tilrauna mundi skólinn ekki, að dómi skólastjóra, hafa áorkað til umbóta og farsældar ýmsu því, er helzt hefur vakið eftirtekt manna á seinni árum. Þegar á fyrsta ári Snorra við Akureyrarskólann lét hann stofna í 4 efstu bekkjunum svonefnd bekkjaráð, og hafa þau verið starfandi nálega óslitið síðan 1930. Hver þessara bekkja hefur sitt ,,ráð“, en í hverju ráði eiga sæti 3 börn, kosin til eins mánaðar í senn. Þessi bekkjaráð eiga að aðstoða við alla stjórn, og á hvert um sig að vera eins konar fulltrúi bekkjar síns og bera ábyrgð á fram- komu hans. Var í aðstoð þessara „ráða“ fólgin mikil og margháttuð hjálp fyrir kennarana, einkum framan af árunum meðan verið var að ná fullu taumhaldi og tökum á skólanum. Að vísu reyndust ekki öll bekkjaráðin jafn vel, enda eru börn, eins og eðlilegt er, misjafnlega vel fallin til forráða, en oft komu fram ágætir forustuhæfi- leikar og voru þeir þá notaðir óspart af skólastjóra og kennurum. Á ýmsa aðra vegu lét Snorri börnin taka þátt í stjórn skólans með kennurunum og reyndist það oft þeim mun betur sem þeim var trúað fyrir meiru. Má t. d. þenda á það, að börnin hafa til skiptis oft og mörgum sinnum að öllu leyti séð um lesstofu skólans og bólcalán, og verið svo hljóð við þetta starf, að heita má að þar hafi hvorki heyrzt hósti né stuna, þótt stofan væri full af lesandi börnum. Þessi lesstofa hefur verið til notkunar börnunum um áratug. Er ein kennslustofan gerð að lesstofu eftir að

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.