Menntamál - 01.11.1947, Page 21

Menntamál - 01.11.1947, Page 21
MENNTAMÁL 147 kennslu er lokið og í henni er bókasafnið. Var það alger- lega Snorra verk að koma upp þessu safni í skólanum, því að enginn vísir þess var til, er Snorri tók við 1930. Þá er og annað bókasafn í skólanum, nefnt Útlánasafnið, og eru nú í því um 200 bindi, en 1930 voru þar 34 bindi. Loks hefur Snorri látið kaupa gríðarmikið af „lesflokk- um“ svonefndum, og eru 34 bækur í hverjum flokki, en flokkarnir voru 1944 um 90 alls. Þetta lesflokkasafn er ætlað til lesturs í kennslustundum, því að lesbækur ríkis- útgáfunnar eru allt of lítið lestrarefni. Á seinni árum hefur skólinn því jafnan haft afar fjölbreytt lesefni handa nemöndum sínum. Pjár til þessara bókakaupa aflaði Snorri með þessum hætti: Árið eftir að hann tók við skólastjórn á Akureyri fékk hann skólanefndina til þess að leggja fram eina lcrónu á hvert skólabarn í því skyni, að því yrði varið til bóka- kaupa. Ritaði hann síðan í blöðin um bókaþörf barna og lesefni og kvaðst mundu fara þess á leit, að hvert barn legði árlega fram eina krónv. til þess að bæta úr þessari þörf. Þessu var ágætlega tekið af foreldrum og aðstand- endum barnanna og hækkuðu þeir fjárhæðina síðar um helming svo að eftir það hafa jafnan komið frá hverju heimili tvær krónur til bókakaupa. Þannig hafa söfnin orðið til, og er þetta gott dæmi um ráðsnilli, árvekni og dugnað skólastjórans. Síðan 1932 hefur komið út við og við blað á vegum Akureyrarbarnaskólans. Þetta skólablað nefnist „Boðber- inn“, og hefur hann jafnan verið sendur inn á heimili barn- anna. Hann hefur alltaf verið vélritaður, nema hvað jóla- blöðin hafa verið prentuð nú síðustu árin. „Boðberinn“ hefur flutt fjölda fræðandi greina og upplýsinga um upp- eldisfræðileg efni, auk frétta af skólastarfinu, sem að sjálfsögjðu hafa alltaf verið í blaðinu. — Þá hafa börnin margoft gefið út einstök smáblöð í skólanum og selt þau

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.