Menntamál - 01.11.1947, Qupperneq 27

Menntamál - 01.11.1947, Qupperneq 27
MENNTAMÁL 153 gekk hann sínar eigin götur. Hann leitaði eftir fyrir- komulagi, sem skynsamlegt væri, eðlilegast og vænlegast til hins bezta árangurs og lét gamlar venjur og hefðbund- ið háttalag víkja fyrir þessu, hvar sem það virtist deyfa áhuga vinnufólksins og verða til trafala. Þegar þurkur var og þörf var á, lét hann t. d. vinna miklu lengur en venjulegt var. Og ef verulegt illviðri var, lét hann hætta þar til upp birti og leyfði þá fólkinu að dansa, ef fram á það var farið. Þessi frítími frá vinnu var seinna unninn upp, þegar búinu hentaði bezt. Þetta mun Snorri einkum hafa gert, þegar hann var verkstjóri á Hólum í Hjaltadal. Bústjóranum, sem þá var á Hólum, fannst fátt um þennan nýmóðins sið og leizt illa á blikuna, þegar fyrir kom, enda þótt illviðri væri, að fólkið kom heim af engjunum fyrir hættutíma og fór að dansa um hásláttinn. Talaði bústjóri um þetta við Snorra, en hann sat fast við sinn keip og lét reynsluna sanna að verkstjórnarlag sitt væri árangursbetra en gamla lagið, því að heyfengur varð meiri á Hólum þetta sumar en áður hafði verið með svipuðum liðstyrk. Nýbreytni Snorra var á hinn bóginn vel þokkuð af vinnufólkinu og samkomulag hans við það hið ákjósan- legasta. Og þessi þrjú sumur lærði hann margt, sem að gagni kom við annars konar verkstjórn. Mennirnir eru, þrátt fyrir allt, býsna líkir, og þeir bregðast oftast nær svipað við sams konar framkomu yfirmanns síns, fyrir- skipunum og úrskurðum hans, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna og hvort sem þeir eru við heyvinnu, bóknám eða barnakennslu. Þess vegna er getan til þess að stjórna flokki starfsmanna ekki bundin við neitt sér- stakt verk, heldur tiltæk stj órnandanum við öll verk, sem hann á annað borð kann sjálfur. Það kemur manni því ekki á óvart, að Snorri lítur sjálfur svo á, að verkstjórnin við heyvinnuna hafi orðið sér dýrmæt reynsla og aukið skilning sinn á ýmsu, sem miklu skipti að kunna tök á,

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.