Menntamál - 01.11.1947, Page 28

Menntamál - 01.11.1947, Page 28
154 MENNTAMÁL þegar stjórna skal stórum barnahóp og mörgum kenn- urum í skóla. — Hitt atriðið, sem bent skal á, er sú staðreynd, að sumir menn eru fæddir með eðli stjórnanda. Spekingurinn Emerson segir í ritgerð sinni um skap- gerð, að til séu menn, sem stærri séu en allt, sem þeir hafi af hendi leyst. Mestur hluti afls þeirra sé hulinn, „eins konar varaforði kraftar, sem verkar beint og milli- liðalaust á þá, sem í návist mannsins eru.“ Svipað er að segja um kraft þeirra manna, er stjórn- semi er í blóðið borin. Góður stjórnandi stýrir mönnum sínum ekki fyrst og fremst með orðum og gerðum, heldur með einhvers konar orkuútstreymi, sem gagntekur þá og vekur hjá þeim traust og virðingu, svo að þeim verður ljúft að láta að vilja hans og þykir sjálfsagt að hlýða boði hans og banni. Sá, sem fer með stjórn og mannafor- ráð sér til sæmdar og prýði, getur eflaust látið í té nokkr- ar haldkvæmar stjórnsemi-reglur. En það, sem honum er mikilvægast við stjórnarstarfið, hið hulda, dularfulla afl, sem verkar beint og milliliðalaust, það getur hann ekki látið af hendi og ekki sett fram í orðum öðrum til eftirbreytni. Listin sú, að láta stjórnartaumana leika sér í hendi, er að miklu leyti meðfædd en ekki áunnin. Sumir velgefnir menn og lærðir geta aldrei haldið uppi aga í kennslustund. Hjá öðrum kemur aginn af sjálfu sér og fyrirhafnarlaust að mestu eða öllu leyti. Snorri Sigfússon hefur eflaust fengið stjórnandaeðli í vöggugjöf. Og þó að skólaheill hans og óvenjugóður starfsárangur standi mörgum fótum, þá mun samt með- fæddur hæfileiki til verkstjórnar og mannaforráða ekki eiga minnsta þáttinn í því, hversu vel honum hefur farn- azt ævistarfið. Nú skal í fáum orðum benda á helztu einkenni skóla- starfshátta og stjórnar Snorra Sigfússonar samkvæmt því, sem hér að framan segir:

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.