Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 30

Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 30
156 MENNTAMÁL þótt Snorra Sigfússyni hafi mörgum fremur tekizt að ná afbragðs stjórn og æskilegum árangri í skólastarfi sínu. V. NÁMSTJÓRN. 1 lögum um fræðslumálastjórn frá 19. maí 1930 var ákveðið, að kennslueftirlit skyldi vera við barnaskóla landsins. Næstu tvo vetur var svo eftirlitið framkvæmt með þeim hætti, að víðast hvar var einum kennara í hverri sýslu falið á hendur eftirlitið þar. En eftirlitsmenn þessir urðu að hafa starf þetta í hjáverkum og gátu því lítið sinnt því vegna annríkis við kennslu í skólum þeim, er þeir voru fastir starfsmenn við. Síðan lagðist eftirlit þetta alveg niður. Snorri hafði kynnt sér skólaeftirlit í utanför til Norður- landa 1932 og sannfærðist þá enn betur en áður um gildi þess og knýjandi þörf hér heima, þar sem kennarar störf- uðu víða aleinir árum saman við lítil þægindi og léleg skilyrði. Og þegar hann árið 1936 var skipaður formaður nefndar, sem skyldi endurskoða fræðslulögin, var kennslueftirlitinu ekki gleymt í frumvarpi því um fræðslu barna, sem nefndin samdi og síðan var lögfest á Alþingi. í lögum þessum er einn kaflinn um námstjóra og mælt svo fyrir, að eftirlitsmenn skuli skipaðir með barna- fræðslunni í landinu, þegar fé sé veitt til þess í fjárlög- um. Áttu námstjórarnir að vera 6, og skyldu þeir hafa eftirlit með kennsluskipun, kennsluaðferðum og árangri kennslunnar samkvæmt erindisbréfi fræðslumálastjórn- ar. En um þetta fór svo, að árin liðu eitt á fætur öðru án þess Alþingi veitti nokkurt fé til nefnds eftirlits. Loks fékk fræðslumálastjórnin því til leiðar komið, að í frum- varpi til fjárlaga fyrir 1942 var sett 20 þúsund króna fjárveiting til námstjóra, og hlaut hún samþykki Alþing-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.