Menntamál - 01.11.1947, Qupperneq 38

Menntamál - 01.11.1947, Qupperneq 38
164 MENNTAMÁL ingar um víða veröld. I frumstæðustu tegund félagsskap- ar var það þegar augljóst, að uppeldið hefur djúptæk áhrif á skapgerð hvers einstaklings og alla framtíðarheill hans. Löngu síðar var það, að þær félags- og stjórnarfarsheildir, sem við nefnum þjóðfélög skildu ’það, að hagsæld þjóðar og öryggi heimtar það, að æðstu yfirmenn og stjórnendur hennar hafi djúpan skilning og mikinn áhuga á uppeldis- málum. Fráhvarf uppeldismála frá einstaklingsábyrgð einni saman og til alþjóðaráðbyrgðar hefur næstum því verið fullkomnuð á tveim síðustu öldum. Nú stöndum við hálf áttavillt á ströndum nýs landnáms á sviði uppeldismála. Það var ekki fyrr en í gær svo að segja, að menn fóru að sjá, að uppeldismálin, eru að vissu leyti alþjóða málefni, eins alþjóðleg og hergagnaverksmiðja eða tollalöggjöf. Reynsla aldanna hefur kennt okkur: fyrst, að gott uppeldi er nauðsynlegt einstaklingnum til þroska, í öðru lagi er það nauðsynlegt fyrir félagsheild umhverfisins, því næst að það er þjóðarnauðsyn, og nú loksins að það er bráðnauðsynlegt heimsfriðnum. Hver þessi lexía hefur lærzt í ströngum reynsluskóla. Þeir, sem ekki voru nógu næmir á þær, urðu með beiskum tárum að sæta ströngum refsingum. Við vitum öll, á hve illvirkan hátt nasistar umhverfðu öllu uppeldinu. Við vitum einnig, hvernig kennarar í frjálsu löndunum gerðu sitt til þess að hrinda af sér árásum óvin- anna og gereyða þeim. Þeir urðu að þola sömu þrengingar og sama tjón og aðrir borgarar. Þeir vernduðu sem bezt þeir gátu öryggi og heilsu barnanna, sem þeim var trúað fyrir. Þeir gátu sér góðan orðstír í andstöðunni gegn óvin- unum. Þeir héldu lifandi ást á heiðri og sæmd og tækifær- unum til að lifa frjálsu lífi og á eigin ábyrgð, sem er, þegar öllu er á botninn hvolft, hið mikla mark og mið allrar heil- brigðar uppeldisstarfsemi. Nú hafa kennarar aftur tekið til óspilltra málanna. Þeir hafa brynjað sig í baráttunni fyrir friði. Þeir hafa ákveðið

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.