Menntamál - 01.11.1947, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL
169
heimalandi sínu. Fór svo að William Russell skólastjóri
kennaraháskólans í Columbia var kjörinn forseti til tveggja
ára, en hann er vinsæll og víða þekktur. Skóli hans er
elzti kennaraskóli í heimi og hefur tekið á móti sæg
nemenda frá flestum löndum.
Varaforseti til eins árs var kjörinn F. L. Sack frá Sviss-
landi, ágætur starfsmaður á fundunum bæði í Endicott og
Glasgow. í framkvæmdanefnd voru kosin, til tveggja ára:
ungfrú Pringle frá Skotlandi, herra Ma frá Kína, herra
Miller frá Kanada, en til eins árs: herra Maj frá Póllandi
og herra Frand frá Ulster í Norður-írlandi.
13. ágúst var síðasti dagur ráðstefnunnar. Var þá lögð
síðasta hönd á störf hennar. Stutt þakkarávörp voru sam-
in fyrir mikla rausn og hjartanlega gestrisni Glasgow-
borgar. Uppeldismálafélag Skotlands hélt veizlu til að
fagna fulltrúum og aðra að endingu. Borgarstjóri efndi til
samkomu í veglegasta gistihúsi borgarinnar, þar var veitt
rausnarlega og hljómlist ágæt. Stuttar ræður og snjallar
voru haldnar á öllum þessum samkomum. Skorti þar
hvorki áhuga og alvöruþunga né góðlátt gaman; en Skotar
eru auðugir af hvoru tveggja.
Lokafundurinn að enduðum félagsstörfum var haldinn
síðdegis. Héldu þar allir áheyrnarfulltrúar ræðu.
Dr. Gros fulltrúi Sameinuðu þjóðanna lofaði mjög undir-
búning Miss Pringle og alla fundarstjórn. Kvað hann henni
hafa tekizt að koma fyrir á einni viku störfum og mann-
fagnaði margra vikna. Dr. Carr gat þess að hér með
endaði hinn fyrsti fulltrúafundur Alþjóðasambands upp-
eldis- og menningarmála, og væri nú allt framtíðargengi
þessarar ungu stofnunar komið undir dáð og dug með-
limanna um víða veröld einstaklinga og félaga.