Menntamál - 01.04.1956, Page 14
8
MENNTAMÁL
þegnleg skylda foreldra að auka ávöxt skólavistar barns
með því að styðja að heimalestri þess. Heimavinna er aðal-
tengiliður heimila og skóla. Hún eflir til sjálfstæðra vinnu-
bragða og rólegrar umhugsunar og gefur tækifæri til að
vinna upp það, sem kann að hafa farið fyrir ofan garð og
neðan í skóla.“ Nemendum er og bent á að vita ætíð fyrir
víst, hvað hefur verið sett fyrir, að hafa daglega ákveðna
stund til lestrar, að velja sér kyrrlátan stað, ef hægt er, og
að viða að sér nauðsynlegum gögnum, áður en tekið er til
starfa. Þeir eru minntir á, að sumar greinar verða alls
ekki numdar að gagni án heimavinnu. Talið er víðast, að
daglega þurfi 1—2 stundir minnst til lestrar fyrir þá,
sem eru í meðallagi. Kennari lítur eftir, að heimavinna
sé af hendi leyst. Ef unglingur vanrækir, getur komið
fyrir, að hann sé látinn sitja eftir og gera betur. Til eru
kennarar, sem setja lítið eða ekkert fyrir, en þeir virðast
fáir. Venjulega er engin heimavinna sett fyrir fram yfir
helgi. Andmælendur heimalestrar færa gegn honum þau
rök, að hjá fjölda unglinga sé hann meira og minna ófull-
kominn og vanræktur. Fyrir því sé ekkert vit í að reisa
námsárangur á honum. Auk þess orki það niðurdrepandi
og siðspillandi á þessa nemendur að hafa sífellt í huga,
að þeir hafi svikizt um.
Námsefni.
Námsgreinar eru margar svipaðar og hér í skólum. Þó
kenna þeir sögu og landafræði í einni grein, er þeir nefna
Social Studies. Hina aðallesgreinina, sem kennd er, nefna
þeir Science. Það eru allar greinar náttúrufræði, svo sem
dýrafræði, grasafræði, eðlilsfræði, efnafræði o. fl. Kristin
fræði eru ekki á námsskrá skólanna. Þó tíðkast mjög að
lesinn sé stuttur kafli úr Biblíunni í byrjun starfsdags,
annaðhvort í hverjum bekk eða í samkomusal. Eru þá
einnig sungnir ættjarðarsöngvar eða önnur fögur ljóð.
Þetta er almenn regla í Kanada, og í U. S. er fyrirkomu-