Menntamál - 01.04.1956, Page 67
MENNTAMÁL
61
endur vinna heimastarf sitt, verður jafnvel að taka tillit til
hinna mismunandi möguleika, sem börnin hafa til að geta
unnið ótrufluð á heimilum sínum.
Heimastarfið getur annað hvort verið fólgið í því að
ljúka við verkefni, sem nemendurnir hafa byrjað á í skól-
anum eða verkefni, sem er aðallega ætlað til að auka
leikni nemendanna í því að framkvæma eitthvað, sem
þeir hafa þegar lært í skólanum. Heimastarfið verður að
hafa verið rækilega undirbúið í skólanum, áður en það er
sett fyrir. Þessi undirbúningur á að vera þannig, að svo
miklu leyti sem það er hægt, að nemendurnir fái áhuga
á verkefninu og aðstöðu til að geta framkvæmt það sjálf-
stæðara en ella. Undirbúningurinn á ekki að vera svo ná-
kvæmur, að lausn verkefnisins krefjist ekki neinnar um-
hugsunar eða sjálfstæðrar ályktunar af nemendanna hálfu.
Á hinn bóginn á undirbúningurinn að vera svo góður, að
öllum erfiðleikum, sem nemendurnir ráða ekki við á eigin
spýtur, sé rutt úr vegi. Nemendurnir eiga að venjast því,
að um leið og þeir skilja ekki verkefnið til hlítar, eiga þeir
að segja frá því, svo að hægt sé að útskýra það.
Stundum getur kennarinn látið nemendurna vinna úr
sams konar verkefnum og þeir fá sem heimaverkefni í
sjálfri kennslustundinni. Með þessu móti fær hann tæki-
færi til þess að dæma betur um notagildi þess sem heima-
verkefnis. Samtímis fær hann einnig betri aðstöðu til þess
að gefa ráð og leiðbeiningar, hvernig bezt sé að fram-
kvæma og vinna úr heimaverkefninu. Slíkar leiðbeining-
ar eru mikilvægt atriði í starfi skólans.
Það á að sjá um það, að heimastarfinu sé dreift á viku-
dagana á hagkvæman hátt. í þessu atriði á kennarinn
að vera vel vakandi, sérstaklega ef fleiri kennarar kenna í
bekknum. Dálítið stærra og þyngra heimaverkefni í einni
grein er oft betra en fleiri og minni og léttari í mörgum
greinum. Nemendur, sem hafa tekið þátt í ferðalagi eða
einhverjum atburði t. d. skólahátíð, eiga að losna við