Menntamál - 01.04.1956, Side 85
MENNTAMÁL
79
uðborgarinnar til að gera samanburð á yfirskrift ólíkra
blaða.
Dæmi um landafræðitíma í 10 ára bekk. Yerkefni: „Um
myndun Danmerkur og fyrstu mennina.
Börnin fá fyrstu fræðslu um ísöldina og myndun lands-
ins af frásögn kennarans. Síðan læra þau helztu land-
fræðilegu atriðin, um eyna, skagann, flóann o. s. frv., að
þessu vinna þau með höndunum, búa til eitt og eitt eða
tvö saman lítil kort úr pappamauki. Á meðan móta aðrir
hópar landslagið í sandkassa.
í öðrum landfræðitímum hafa börnin lesefni um fyrstu
mennina. Við notum sem undirstöðubækur „Gutti stein-
aldardrengur“ og „Bo bronsaldardrengur“. Þetta efni
tökum við ýmist til samlestrar og umræðu eða börnin
leysa verkefni, sem gefa þeim dálitla æfingu í að svara
spurningum varðandi lesefnið. Einnig gera þau nokkrar
teikningar í vinnubókina."
Ég hef tilfært hér nokkur dæmi, en því miður gefa þau
aðeins ófullkomna hugmynd um hina skemmtilegu og
óvenjulegu kennslutilhögun, en vera mætti, að þau gætu
samt orðið einhverjum hvatning til að kynna sér skýrsl-
una nánar.
NAUÐSYN SICAPANDI STARFS.
Áttundi kaflinn og sá síðasti, er ég skýri frá hér, fjallar
eins og fyrr er frá greint, um skapandi starf. Þar segir
m. a.: „Aldrei hefur það verið eins mikilvægt og nú, að
uppalandinn gefi hinum skapandi hæfileikum næstu kyn-
slóðar nánar gætur, þar sem maðurinn hefur tekið tækn-
ina svo mjög í sína þjónustu bæði í starfi sínu og tóm-
stundum, að tæknin verður stundum húsbóndinn og mað-
urinn þræll hennar.
Tækni er afl, sem getur bæði örvað skapandi hugsun
og verið þrándur í götu frjáls skapandi starfs og skap-
andi hugsunar. Tæknin býr að vísu yfir mikilli fjölbreytni,