Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 92
86
MENNTAMÁL
SITT AF HVERJU TÆI
SKÓLAAFMÆLI.
Á síðasta ári var margföld ástæða til að rifja upp hlutdeild islenzkra
skóla í þjóðlífinu. Þá voru t. d. liðin 75 ár frá því að Möðruvallaskól-
inn og Kvennaskóli Húnvetninga hófu starf, 50 ár voru liðin frá því
að alþýðuskólinn á Hvítárbakka, sem Héraðsskóli Borgfirðinga kvikn-
aði af, tók til starfa og 40 ár frá því að Unglingaskóli Stykkisliólms
hóf störf. Þá minntist einnig Gagnfræðaskólinn á Akureyri aldar-
íjórðungsafmælis.
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI.
Menntaskólinn á Akureyri minntist afinælisins með guðsþjónustu
og skólasetningu á sögustaðnum og skólasetrinu Möðruvöllum 15. okt.
s. i. Séra Sigurður Stefánsson prófastur á Möðruvöllum messaði. Þór-
arinn Björnsson skólameistari setti skólann og rakti sögu hans. Möðru-
vallaskóli hefur fylgt kalli tímans, og er hann nú orðinn að Mennta-
skólanum á Akureyri. Saga hans er glæsilegt dæmi um farsæla þróun,
vöxt og viðgang. Þar hefur haldizt í liendur trúnaður við trausta
skipun og góðar skólavenjur annars vegar og sveigjanleiki, aðlögunar-
hæfi hins vegar. Gamlir nemendur Menntaskólans á Akureyri, og
eru það raunar ungir menn ennþá, sitja nú í ýmsum þeim stöðum,
er strangastar kröfur gera um nám og ábyrgð. En Möðruvellingarn-
ir og gagnfræðingarnir frá Akureyri hafa íullsannað, hvern feng þeir
sóttu til skóla síns. Vil ég jafnframt minna á það, sem ef til vill er
ekki gefinn sá gaumur sem skyldi, en Sigurður Guðmundsson skóla-
meistari taldi miklu máli skipta, að menntaskóli skapaði og efldi
kynni með langskólagengnum mönnum, þeim er áfram lialda námi,
og hinum, er liverfa að öðrum störfum að gagnfræðanámi loknu.
Einkum minnist ég þess, að Sigurður hélt fast á þessu máli í umræðum
á fundi framhaldsskólakennara á Laugarvatni vorið 1937. Þegar hrað-
fara stefnir til stóraukinnar menningarlegrar stéttaskiptingar i landi
nkliar, er þörfin enn brýnni að minnast þessa sjónarmiðs.
Sagt er allrækilega frá afmæli Möðruvallaskólans í Morgunblaðinu,
3. nóv. 1955. Er þar m. a. kafli úr setningarræðu Þórarins Björns-
sonar skólameistara.