Menntamál - 01.04.1956, Qupperneq 96
90
MENNTAMÁL
Bókaf regrnir
AXEL NIELSEN:
Vinnubók i landafraði. Evrópa III. Guðmundur H. Pdlsson og Jón
Þórðarson þýddu. Guðmundur I. Guðjónsson skrifaði textann. Jónas
B. Jónsson skrifar formála. Prentað í Lithoprent 1955.
Allmikið er rætt og ritað um breytingar á starfsháttum í íslenzk-
um skólum. Má sjá það m. a. af þessu hefti Menntamála. Get ég
ekki þagað yfir því, að ég er ekki með öllu áhyggjulaus af því að starfs-
hættir og kennsluaðferðir kennara sé gagnrýnt mjög, ef tök eru
engin á því að taka upp aðrar aðferðir vegna skorts á tækjum og
kunnáttu eða fyrir aðrar sakir. Aðferðir eru að sjálfsögðu misgóðar.
Ekki lætur sama aðferð öllum kennurum jafnvel, ekki liæfir sama að-
ferð hverju aldurs og greindarstigi jafnvel, ekki hæfir sama aðferð ólík-
um stað og tíma, og svo má lengi telja. En sérstök þörf er að minn-
ast þess, að ein aðferð er aldrei góð, sú sem handhafi vantreystir. Og
önnur aðferð er lilutfallslega vænleg til árangurs, sú er handhafi
treystir iil góðra hluta. Kennurum er því ráðlegt að spyrja fyrst um
árangur starfs síns, en síðan hverri aðferð þeir beita. Enginn skyldi
heldur ltverfa frá þeirri tækni, sem hann hefur náð skynsamlegu
valdi á og leikni við að beita, áður en liann hefur kynnt sér aðra
tækni jafngóða eða betri og fengið í hendur þau áliöld, sem liún
krefst og kunnáttu að beita henni. Boðskapur um nýja kennsluliætti
og nýjar aðferðir er því jafnframt krafa um ný tæki, á það ekki sízt við
skólabækurnar sjálfar.
Margt bendir til þess, að nokkur fjörkippur sé að færast í gerð
skólabóka hérlendis, en þar standa Islendingar mjög að baki þjóð-
um, er gera álika kröfur til skóla.
Menntamálum liefur borizt vinnubók í landafrœði eflir Axel Niel-
sen. Er þetta þriðja lieftið, og fjallar um Evrópu, að Norðurlöndum
undanskildum. Annað heftið, sem væntanlegt er á næstunni, fjallar
um Norðurlöndin, nema ísland. Eyrsta heftið á að vera um ísland.
Verður það frumsamið og kemur væntanlega út, áður en mjög langt
líður, ef reynsla sannar á annað borð, að kennarar vilji nota þessar álit-
legu kennslubækur. Vinnubókin er fagurlega gefin út og vandað til
frágangs, m. a. afburðavel skrifuð, sem vænta mátti af Guðmundi I.
Guðjónssyni. Slík samvinna um gerð námsbóka er til fyrinnyndar, og
og er vert að minnast þess, að vart verður fundinn maður, sent