Menntamál - 01.04.1956, Side 97
menntamál
91
einfær er um að semja kennslubók lýtalausa á allan hátt. Þannig
skyldi engin kennslubók prentuð án þess að málfróður maður og smekk-
vís læsi handritið.
Bókin mætti verða hinum ágæta, látna kennara Guðmundi Páls-
syni nokkur minnisvarði á þann veg, er liann mundi helzt hafa kosið,
að bæta og fegra vinnubrögð barna, en hinum livatning, er við hafa
tekið.
Hér fer á eftir formáli Jónasar B. Jónssonar fyrir vinnubókinni:
Það hefur lengi verið áhyggjuefni kennara, hversu lítið hefur verið
til af islenzkum hjálpartækjum við kennslu og liandbókum fyrir
kennara og nemendur.
Fyrir nokkrum árum var á fulltrúaþingi S. í. B. kosin nefnd, er
vinna skyldi að því að leysa þennan vanda og annast framgang þess-
ara mála. Beitti nefndin sér fyrir prentun landakorta til þess að
teikna eftir, en Ríkisútgáia námsbóka gaf þau út. Hafa þessi kort
verið mikið notuð. Síðan fékk nefndin tvo nefndarmanna, þá Eirík
Stefánsson og Sigurð Gunnarsson, til þess að sernja átthagafræði, sem
S. í. B. gaf út. Aðrir tveir nefndarmanna, Jón Þórðarson og Guðmund-
ur Pálsson, tóku að sér að þýða þessa bók eftir Axel Nielsen, með leyfi
liöfundár. Guðmundi Pálssyni entist ekki aldur til þess að ljúka verk-
inu, en Ásdís Steinþórsdóttir kona hans tók við, þar sem hann hvarf
frá, og luku þau Jón við þýðinguna.
Vinnuhefti Axels Nielsens njóta mikilla vinsælda í Danmörku og
víðar á Norðurlöndum. Verður þó að nota þau með nokkurri var-
færni. Eigi má venja nemendur á að skrifa upp úr bók orðrétt. Bók
nemendans á að vera hans eigið verk, bæði teikningar og texti. En
til þess að gera nemendum auðveldara að teikna myndirnar, eru þær
gerðar á rúðustrikaðan pappír. Þannig pappír þurfa nemendur að
geta fengið. Rétt er, að kennarar leiðbeini nemendum um val mynda,
er þeir teikna í vinnubók sína, því að ekki er ráðlegt, að liver og einn
teikni allar myndirnar, enda vinnst sjaldnast tími til þess. Vinnu-
hraði nemenda er mjög misjafn, sumir teikna mikið, aðrir lítið, en
það skiptir ekki mestu máli. Aðalatriðið er vinnan sjálf. Sé hún við
liæfi nemandans, færir liún honum ánægju og öryggi í námsstarfinu
auk þekkingarinnar.
Atliyglisvert er, live höfundi hefur tekizt að gera allar landakorta-
myndir einfaldar og fábrotnar, t. d. á bls. 30 af Spáni. Þótt kennarar
og nemendur séu ekki vanir teikningu, ná þeir samt undra fljótt
leikni í því að draga upp slík kort fríhendis, og ætti að gefa því meiri
gaum en gert er.
Línurit eru lærdómsrík og gefa gott yfirlit um stærð og íbúafjölda
landa og eru hentug til samanburðar. Þau sýna einnig oft glögglega