Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 106
100
MENNTAMÁL
HVER ER KENNARINN?
Eins og lesendum Menntamála er kunnugt, verður kennaratalið
safn æviágripa allra kennara landsins, við æðri sem lægri skóla, og
er nú talið fullvíst, að það verði 3—4 tíu arka bindi. í því verða
upplýsingar um ætt kennarans, menntun hans og störf. Kennaratalið
birtir myndir af öllum kennurum landsins, sem myndir eru til af, þar
á meðal öllum merkustu skólamönnum þjóðarinnar, fyrr og síðar.
Kennaratalið verður því ómissandi liandbók fyrir fræðslumálastjórn
landsins, skólanefndir, skólastjóra, kennara og aðra þá, sem vilja eða
þurfa að leita sér upplýsinga um kennara. Auk þessa verður kennara-
talið mikilvæg heimild um fjölmörg atriði í fræðslu- og skólamálum
þjóðarinnar. í kennaratalinu verður því að finna svarið við spurning-
unni: Hver er liennarinn?
FJÖGURRA ÁRA STARF.
Á útmánuðunum 1952 voru fjórir menn skipaðir í nefnd af hálfu
kennarasamtakanna í landinu til þess að vinna að framgangi þessa
merka máls. Hún réð þá þegar Ólaf Þ. Kristjánsson skólastjóra í
Hafnarfirði til þess að annast ritstjórn verksins. Hefur liann nú
unnið að kennaratalinu í samfleitt þrjú og hálft ár. Nú eru fjögur
þúsund kennarar komnir á skrá, og safnað hefur verið nokkuð á
þriðja þúsund æviskrám. Þetta liefur verið seinunnið verk og vanda-
samt, og enn eru ekki öll kurl komin til grafar. Nefndin vill því
enn einu sinni hvetja alla kennara og aðra áhugamenn til þess að
láta ritstjóra í té allar þær upplýsingar, sem þeir kunna að hafa í
fórum sínum um menn, er stundað hafa kennslu, fyrr eða síðar.
Siðar mun verða gefinn út sérstakur viðbætir, og munu þar birtast
æviskrár allra þeirra, sem af einhverjum ástæðum hafa fallið úr
kennaratalinu og ekki lent á sínum rétta stað í ritinu.
STÓR BÓK OG DÝR.
Nefndin hafði í fyrstu hugsað sér að gefa kennaratalið út i einni
bók, en hefur nú horfið frá því ráði, og kemur það út í heftum, eins
og fyrr er sagt. Telur hún, að með því fyrirkomulagi muni verkið
vinnast miklu betur, og jafnframt er mönnum gert hægara fyrir að
eignast þetta mikla verk. Iíennaratalið liefur orðið geysilega dýrt í
útgáfu, enda vel til þess vandað á allan hátt (sbr. myndir og pappír),
prentunar- og útgáfukostnaður allur hefur líka aukizt gífurlega á
seinustu árum. Kennaratalsnefnd hefur unnið að framgangi þessa
máls i þeirri góðu og einlægu trú, að hún væri að vinna hér þarft
verk og gott. En nú er eftir yðar hlutur, góðir kennarar! Nefndin
beinir þeim eindregnu tilmælum til allra kennara og annarra áhuga-