Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 111
MENNTAMÁL
105
æfinga þessara er, að kennaraefnum er skipt niður og verða þeir tveir
og tveir saman, síðan mun annar þeirra kenna við einhvern skóla um
missirisskeið, en hinn stunda nám sitt; síðara missirið hafa þeir
verkaskipti.
Ný aðferð við menntun kennara. Háskólinn í Arkansas hefur til
reynslu komið á fót sérstöku námskeiði, sem ætlað er mönnum er
útskrifazt hafa úr æðri skólum. Skulu þeir vera yngri en 45 ára, hafa
alhliða menntun, vera sérmenntaðir á einhverju sviði og hafa nauðsyn-
lega hæfileika til brunns að bera. í júní 1955 tóku þeir þátt í 9—12
vikna undirbúningsnámskeiði, síðan tóku þeir við einum bekk í ein-
hverjum gagnfræðaskóla í Arkansas til eins skólaárs. Þetta ár sækja
þessi kennaraefni viss námskeið, en undirbúningnum lýkur síðan með
3 mánaða bóknámi næsta sumar. Síðan fá þeir, sem staðizt hafa raun
þessa Master’s Degree í september 1956.
Ahugi vakinn á kennarastarfinu. Til þess að bæta úr hinum mikla
kennaraskorti hefur nemendum efstu bekkja æðri skóla verið boðið
að taka þátt í námskeiði, er nefnist Exploratory Teaching. Nemendur
þessir eru látnir fylgjast með kennslu í einhverjum bekk, síðan fá
þeir að æfa sig undir umsjón kennara. Þetta nýja námskeið stendur 2
missiri og fá nemendur, sem taka þátt í því einkunnir, sem þeim eru
reiknaðar á lokaprófi úr hinum æðri skóla.
Bóknám og hagnýtt starf. í New York hafa 36 æðri skólar, þar af
15 iðnskólar, komið á fót nýju kennslukerfi í samvinnu við um það
bil 250 fyrirtæki. Störfum er þannig hagað, að á skiptist tveggja
vikna nám og tveggja vikna hagnýt vinna í einhverju fyrirtæki (eða
hálfur dagur við nám og hálfur dagur við vinnu). Um 4000 piltar
og stúlkur unnu sér inn $ 2.444.559 síðastliðið ár.
Kennsla i bifreiðaakstri. Um nokkurra ára skeið hefur verið kennt
á bifreiðar í bandarískum skólum. í Mainefylki hafa um 8000 piltar
og stúlkur notið góðs af þessari kennslu síðan 1946. Samkvæmt
skýrslu fylkislögreglunnar urðu aðeins 43 þeirra fyrir bifreiðaslysum
árið 1952, sem er um y2%. Hundraðstala þeirra, sem orðið höfðu
fyrir slysum, en ekki hlotið kennslu í skólum, var 10%.
TRAKKLAND.
Leiðbeiningar um stöðuval i menntaskólum. Samkvæmt um-
hurðarbréfi frá fræðslumálastjórn skal enginn nemandi hætta
námi í menntaskóla, án þess að hann fái skýra og skorinorða
umsögn um þá braut, er honum er ráðlagt að leggja út á. í hvert
skipti, sem nemanda býðst starf, er skólastjóra skylt að auðvelda
stöðuvalið með því að sjá fjölskyldu nemandans fyrir nauðsynlegum
upplýsingum um þá stofnun, er nemanda hefur verið bent á ... í