Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 125
MENNTAMÁL
119
branaskólum landsins (ritgerð um bindindismál) og mun B. í. K.
greiða verðlaunin. Fleira er í umræðu, og þakksamlega mundi stjórn
íélagsins taka á móti tillögum og bendingum um það, hvað gera skuli
áhugamálum voru til framdráttar og brautargengis. Okkur er ljóst, að
þörfin er mikil fyrir aukið starf og margs konar tilraunir í þágu bind-
indisstarfseminnar í landinu. Á grundvelli samstarfs áhugamanna er
líka margt hægt að gera. Þess vegna er B. í. K. til orðið. Sameinumst
allir í því að gera það að máttugu tæki í baráttunni fyrir aukinni
menningu og betri þjóðarhag.
F. h. stjórnar B. í. K.
Jóhannes Oli Sœmundsson, ritari.
LíÍep'is§joður
LAGABREYTINGAll.
Á s. 1. ári gerði Alþingi nokkrar breytingar á lögum um lífeyris-
sjóð barnakennara frá 1943. Aðalefnisbreytingarnar voru þessar:
1. Þegar sjóðfélagi hefur greitt iðgjöld í 30 ár, falla greiðslur hans
niður. Áður greiddi hann iðgjöld, þar til hann lét af starfi eða
samanlagður þjónustualdur hans og lífaldur var 95 ár.
2. Fresti sjóðfélagi að taka ellilifeyri og haldi starfi áfram, eltir
að hann hefur öðlazt rétt til að hætta, liækkar lífeyririnn urn
2% al' meðalárslaunum íyrir hvert ár, er liann frestar að taka
lífeyri.
3. Sú meginbreyting var gerð á reglunum um örorkumat, að meta
skal nú sérstaklega vanhæfi sjóðfélaga að gegna því starfi, sern
hann hefur haft á hendi í stað þess, að áður var örorkan metin
til starfa almennt. Öll þessi ákvæði eru sjóðfélögum til veru-
legs hagnaðar.
4. Réttindi til ellilíl'eyris eru nú einungis bundin við 65 ára aldur.
Hin svo nefnda 95 ára regla eldri laganna var felld niður.
Menn eru ekki alveg á einu máli um, livort þeir, er voru sjóðfélagar
lyrir giklistöku laganna, eigi rétt til 95 ára reglunnar eða ekki, ef þeir
^ætta að greiða iðgjald eftir 30 ár. Stjórn sjóðsins hefur úrskurðað,
að þeir njóti ekki þess réttar nema þeir greiði áfram. Þar til um þetta
fœst endanleg niðurstaöa, verður hver sjóðfélagi, er þetta snertir, að
ahveða það sjálfur, hvort hann hœttir iðgjaldagreiðslu eftir 30 ár