Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 54
40
MENNTAMÁL
Þar er aftur komið að því atriði, sem er mesti ásteyt-
ingarsteinn gagnrýnenda þessa fyrirkomulags, því að
auðvitað á það sér gagnrýnendur. Þeir segja að „Compre-
hensive school“ sé því líkt ógnarbákn, að líkara sé verk-
smiðju en skóla. Það vanti allt samband milli skólastjóra
og nemenda, skólastjórinn þekki ekki einu sinni alla kenn-
arana.
Mr. Thomas aðalskólastjóri sagði okkur, að í þessum
skóla væru tæplega 2000 nemendur. Kennarar eru 102 ,,og
ég þekki þá alla“, bætti hann við, brosandi.
Niðurstaða þessara hugleiðinga um hið nýja skólakerfi
verður þá sú, að „Comprehensive school“ reynir að sjá
fyrir öllum tegundum almenns framhaldsnáms (secondary
education) og vill leitast við að gera það aðgengilegra og
frjálsara en tíðkast í framhaldsskólum með eldra sniði,
þar sem þrengri flokkun í þrenns konar skóla á sér stað.
Getur orðið fróðlegt að fylgjast með því, hvernig þessi til-
raun gefst í framtíðinni.
Að loknu viðtali okkar gestanna við skólastj órann vor-
um við leiddir um skólann. Var okkur að sjálfsögðu sýnt
margt merkilegt, þótt hér sé um að ræða stærri byggingu
en svo, að hún verði öll skoðuð á þeim tveimur tímum, sem
við höfðum til þess. Þetta er níu hæða hús með fjöldamörg-
um hraðfara lyftum. Það er langglæsilegasta skólabygg-
ing, sem ég sá í Englandi.
Við komum þarna í fyrirmyndar vinnustofur í ýmsum
greinum: í eðlisfræði (laboratoríum), í landafræði, sögu,
líffræði, grasafræði, teiknun o. s. frv., enn fremur les-
stofur og bókasafn. í nokkrum stofum stóð yfir kennsla,
þar sem notaðar voru skuggamynda- og kvikmyndavél-
ar, en þær eru í mörgum stofum og mikið notaðar við
kennslu.
í skólanum eru mörg herbergi með hljóðfærum fyrir
einkaæfingar nemenda í hljómlist þ. á m. píanó í nokkr-
um. Eru þar með búin starfsskilyrði þeim, er hafa tón-