Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 64
50
MENNTAMAL
fremur verður kennarinn að greina milli töluskilnings, (t.
d.: Hve mörg börn standa hér?) og tölunotkunar (t. d.:
látið 7 börn koma hingað). Hvorttveggja verður að æfa.
Hljóðfallstalningu mætti kannski nefna, þegar börn eru
látin telja upphátt, með áherzlu á annarri eða þriðju
hverri tölu, og stutt þögn á eftir þessum tölum, t. d. 1, 2,
3, + 5, 6, o. s. frv. 1, 2,; 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 o. s. frv.
Fyrst er sjálfsagt að nota hluti eða reikningstákns-
myndir við þessa talningu eins og almenna talningu.
Eigi skal byrja á svona talningu, fyrr en börnin eru
leikin í almennri talningu.
Börnin geta talið eitt og eitt eða í kór. Þarna sem
annars staðar verður að leggja áherzlu á fjölbreytni í vali
verkefna á því, sem telja á. Nota ætti kúlugrind eða vegg-
töfluna við þessar æfingar. Nokkur hluti töflunnar þyrfti
að vera rúðustrikaður. Svartur grunnur með ljósrauðum
línum, eða grænn grunnur með hvítum eða gulum línum.
Þessar æfingar er góður undirbúningur fyrir raðtölu-taln-
ingu, sem er undirstaða margföldunar.
Gott er að byrja nokkuð snemma á því að láta börnin
mæla eitthvað, er þau telja. T. d. hve mörg skref er gólfið í
skólastofunni á lengd, og hve mörg fet á breidd? Síðar
mæla þau með nákvæmum mælieiningum
Eins og sýnt hefur verið hér að framan, kemur margt
til greina, þá er leggja á dæmi með eintómum tölum fyrir
yngstu nemendur. Eftirfarandi er sett hér sem dæmi um
meðferðina. Röðin getur gjarnan verið hin venjulega, en
hafa skyldi fast í huga, að æfa ber mest erfiðustu talna-
samböndin. Það er t. d. erfiðara að leggja saman og draga
frá ólikar tölur en líkar. Auðveldust er samlagning tveggja
jafnstórra talna. Þannig er 5 -f 5 eða 2 + 2 léttara en
1 + 3, og 8 + 8 miklu léttara en 8 + 5. 14^- 5 er töluvert
erfiðara en 16-+$.
Á grundvelli víðtækra skýrslna um rannsóknir á reikn-
ingsskekkjum barna, hafa verið sett upp í kerfi eða röð