Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 78
64
MENNTAMÁL
happdrætti háskólans, skattur á neyzluvörur, gjald fyrir
happdrættisleyfi, tekjuskatts- og útsvarsfrelsi gjafa til
sjóðsins, undanþága frá ákvæðum um erfðafjárskatt á
gjafir til sjóðsins, getraunastarfsemi um íþróttir og kosn-
ingaúrslit, hvort einstakir vísindasjóðir gætu runnið í
vísindasjóð, hvort ríkisvaldið vildi leggja fram fé til sjóðs-
ins. Ármann Snævarr hafði orð fyrir nefndinni.
Á fundi þessum kom til orða að ræða málið við mennta-
málaráðherra og fjármálaráðherra, og á Þorláksmessu
skýrðu þeir Ármann Snævarr og Broddi Jóhannesson þáv.
menntamálaráðherra Bjarna Benediktssyni frá starfi sam-
takanna, og var hann hlynntur málinu.
í marzbyrjun 1956 kvaddi menntamálaráðherra Ár-
mann Snævarr á fund sinn og skýrði honum frá því, að
ríkisstjórnin hefði ákveðið að skipa nefnd til að rannsaka
fjáröflunarleiðir og skipulagsmál væntanlegs vísindasjóðs.
Skyldu samtökin tilnefna einn mann í nefndina, Rannsókn-
arráð ríkisins annan, háskólaráð hinn þriðja og stjórnar-
ráðið tvo. Samtökin kusu Ármann Snævarr i nefndina.
Hins vegar var ákveðið að fresta um sinn stofnun félags
til eflingar vísindastarfsemi í landinu.
Menntamálaráðherra Bjarni Benediktsson skipaði nefnd-
ina 24. marz 1956 þessum mönnum: Birgi Kjaran, og var
hann formaður, Júlíusi Sigurjónssyni, Ármanni Snævarr,
Birni Sigurðssyni og Pálma Hannessyni. Mun nefndin hafa
byggt allmikið á gögnum ofangreindra samtaka og tillög-
um þeirra. Á vegum nefndarinnar samdi Ármann Snævarr
yfirlit yfir fjárframlög af opinberri hálfu til vísinda- og
rannsóknarstarfsemi hér á landi. Samdi nefndin frv. til
laga um vísindasjóð og skilaði því af sér 4. jan. 1957 til
þáverandi menntamálaráðherra Gylfa Þ. Gíslasonar-
Hann hafði skipað aðra nefnd 28. des. 1956 til þess að und-
irbúa frv. til laga um Menningarsjóð og menntamálaráð
svo og skemmtanaskatt og Þjóðleikhús; var henni einnig
falið að fjalla um frv. nefndarinnar. Breyttist frv. hinnar