Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 94
80
MENNTAMÁL
Biskupstungum og í Reykjavík hefur nýr skóli, Vogaskóli,
tekið til starfa í nýju skólahúsi við Gnoðarvog.
Nýtt leikfimishús hefur verið tekið í notkun í Húsavík.
Fjárveiting 1959:
Fjárlög 1959 gera ráð fyrir til menntamála alls kr.
150.386.488,00. Þar af til kennslumála: A-liður kr. 139.-
639.978,00. — X a—b) Til skólahúsabygginga (61 alls, 10
ný) kr. 12.102.308.00. — c—d) Til skólastjórabústaða (8
alls, 4 nýir þar af) kr. 383.452,00.
Fjárveiting alls til barnaskólabygginga og skólabíla kr.
12.721.760,00.
1. Gagnfræðastigsslcólar.
Skólaárið 1958—’59 voru starfandi gagnfræðastigsskól-
ar samtals 71, þar af 4 einkaskólar. Fastir kennarar voru
alls 310. Af þeim voru 13 starfandi að hálfu leyti við barna-
skóla. Tveir kennarar voru í orlofi, 4 voru frá störfum
vegna veikinda og 5 höfðu leyfi frá kennslu án launa.
Haustið 1958 hófu 50 kennarar störf við gagnfræða-
stigsskóla sem fastir kennarar. Allmargir þeirra höfðu áð-
ur verið fastir kennarar við barnaskóla, og margir höfðu
áður verið stundakennarar.
Nemendur voru samtals 7436. Þar af voru 3409 í skólum
gagnfræðastigsins í Reykjavík.
í lok skólaárs létu um 20 kennarar og skólastjórar af
störfum. Meiri hluti kennaranna hafði aðeins verið við
kennslustörf í 1—2 ár.
Bjarni Bjarnason, skólastjóri Héraðsskólans á Laugar-
vatni, varð sjötugur í október, en hafði látið af skólastjórn
á miðju skólaári.
Fröken Ragnheiður Jónsdóttir, skólastjóri Kvennaskól-
ans í Reykjavík, varð sjötug í byrjun október og lét af
skólastjórn í lok skólaárs.