Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 100
86
MENNTAMÁL
SITT A F HVERJU
Frá Teiknikennarafélagi íslands.
Um þessar mundir er unnið að því á vegum Golden Gate leik-
skólanna í San Francisco, að koma á fót barnalistasafni, er veiti
yfirlit yfir þróun barnalistar um allan lieim. Yfirumsjónarmaður
leikskólanna, frú Rhoda Keliogg, sem um mörg undanfarin ár hefur
stjórnað víðtækum rannsóknum á þróunareinkennum barnalistar,
hefur yfirumsjón með skipulagningu safnsins.
Frú Kellogg hefur farið þess á leit við Teiknikennarafélag íslands,
að Jiað annist söfnun mynda á Islandi tif safnsins. Félagið vilf því
Iiér með beina Jjeim tilmælum til foreldra og kennara um allt land,
að Jjeir sencli því við fyrstu hentugleika myndir eftir börn á aldr-
inum tveggja til tíu ára. Einkum er Jdó seilzt eftir myndum barna
á aldrinum tveggja til fimm ára.
Þess er vænzt, að foreldrar og kennarar láti félaginu berast sem
fjölbreytilegast safn þeirra mynda, sem börn á fyrrgreindum aldri
festa á pappír, jafnvel Jrótt J>ær virðist vera „mesta pár“. Félagið
mun senda til San Francisco allar J>ær myndir, sem ]>ví kunna að
berast, en ]>ar munu sérfræðingar velja úr ]>ær myndir, sem settar
verða á safnið. Félagið getur ekki tekið að sér endursendingu J>eirra
mynda, sem ekki verða teknar á safnið.
Æskilegt er, að á bak liverrar myndar sé skrifað: 1) nafn barnsins;
2) aldur; 3) „F“ ef um stúlku er að ræða. „M“ ef um pilt er að ræða;
4) dagsetning myndarinnar.
Utanáskriftin er: Teiknikennarafélag Islands, c/o Guðmundur
Elíasson, Njálsgötu 94, Reykjavík.
Framhvœmdir og nýmœli i Rarnaskóla Hafnarfjarðar.
Á árinu 1957 hafði Barnaskóli Hafnarfjarðar starfað í 80 ár. Þá
ákvað stjórn skólans að vinna að ]>ví, að skólinn eignaðist magnara-
og hátalarakerfi, en slík tæki eru nú mjög almennt notuð í stærri
skólum víða erlendis. Árið 1956 var stofnaður Menningarsjóður
skólans. Stofnfé hans er þannig tii orðið, að nemendur skólans skrif-
uðu og gáfu út fjölritað skólablað. Ágóði blaðsins rann óskiptur í
Menningarsjóðinn, og var hann í maímánuði s.l. orðinn um 30.000,00