Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 85
MENNTAMÁL
71
kennslu vangefinna barna, og Gestur Þorgrímsson kennari, sem ræddi
um og sýndi margvíslega notkun kvikmynda og skuggamynda í
kennslustundum.
Síðari fundardaginn flutti Magnús erindi fyrir almenning í Skáta-
heimilinu. Fjallaði erindið um uppeldi vangefinna og afbrigðilegra
barna svo og um ýmsar andlegar og líkamlegar orsakir þess, að börn
verða afbrigðileg og vangefin.
Einn af stofnendum Kennarafélags Vestfjarða, Sveinn Gunnlaugs-
son skólastjóri á Flateyri, var mættur á fundinum, og hefur hann
setið alla fundi félagsins frá stofnun þess. Sveinn lét af skólastjóra-
starfi sínu í sumar fyrir aldurs sakir.
I fundarlok ávarpaði Þórleifur Bjarnason námsstjóri Svein Gunn-
laugsson, liinn síunga og eldlega áhugamann, og flutti lionum þakk-
ir fyrir langt og mikið starf. Fundarmenn risu úr sætum og tóku und-
ir með lófataki. Síðan var samþykkt að gera Svein að heiðursfélaga.
I stjórn Kennarafélags Vestfjarða voru kosnir:
Jón H. Guðmundsson, skólastjóri á ísafirði, formaður.
Guðm. Ingi Ivristjánsson kennari í Önundarfirði, ritari, og
Björn Jóhannesson skólastjóri í Bolungarvík, gjaldkeri.
Fundurinn ræddi mörg mál og gerði eftirfarandi ályktanir og sam-
þykktir:
1.
17. aðalfundur Kennarafélágs Vestfjarða, haldinn á ísafirði dag-
ana 10. og 11. október 1959 ,telur, að ein helzta ástæðan fyrir þeim al-
varlega og sívaxandi skorti á mönnum með kennarapróf, sérstaklega
við barna- og unglingaskóla, sé sú, að laun þessara kennara séu alltof
lág og alls ekki i neinu samræmi við námskostnað þeirra eða launa-
kjör liliðstæðra stétta i þjóðfélaginu.
Fundurinn leyfir sér því að skora mjög ákveðið á yfirstjórn fræðslu-
málanna, Alþingi og ríkisstjórn að vinda bráðan bug að því að bæta
launakjör barnakennara verulega frá því sem nú er, svo að afstýrt
verði þeim aðsteðjandi vandamálum og hættum, sent kennaraskort-
inum fylgja.
Jafnframt beinir fundurinn þeirri eindregnu áskorun til kenn-
arasamtakanna og þá alveg sérstaklega til stjórnar Sambands íslenzkra
barnakennara að vinna markvisst að bættum launakjörum stéttar-
innar.
2.
Með tilvísun til þeirra rniklu erfiðleika, sem á því eru að fá menn
með kennararéttindi til starfa við barna- og unglingaskóla utan
Reykjavíkur og næsta nágrennis, lcyfir fundurinn sér að benda yfir-