Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 49
menntamál
35
eldismáladeildar Edinborgarháskóla og eru kölluS Morey-
house tests.
Prófverkefnin í ensku og reikningi fyrir barnaskóla
Lundúnaborgar eru gerð í fræðslumálaskrifstofu borgar-
innar. Annars staðar í landinu eru þau samin á sambæri-
legum stöðum, og eiga námsstjórar þátt í samningu þeirra.
Verkefnunum í móðurmáli og reikningi svipar allmjög til
slíkra skriflegra verkefna hjá okkur.
I daglegu tali eru þessi próf nefnd „ellefu plús“ (11 +,
eleven plus). Er það allgamalt nafn og dregið af því að
þau hafa verið haldin um það leyti sem börnin fylla ellefta
árið og komast á það tólfta. Hefur þetta nafn orsakað
margan prófskjálfta, eftir því sem mér var tjáð bæði af
kennurum og öðrum fullorðnum mönnum.
Eftir niðurstöðum þessara prófa eru börn svo flokkuð
til framhaldsnáms, sem áður segir. Þau sem standa sig
bezt og eru líkleg til bóknáms eru talin hæf til að fara í
.Ærammar school“ með langskólanám að markmiði. Ann-
ar flokkur barna er sendur í „technical schools“ til hvers
konar tæknináms og verzlunar. I þriðja lagi eru börn sam-
kvæmt þessum prófum send í „secondary modern schools“,
skóla, sem eru með mjög frjálsri námsskrá, eins og áður
er á drepið. En þeir skólar veita ekki nein tiltekin rétt-
indi með prófum.
Út úr tækniskólunum skrifast nemendur að sjálfsögðu
til hinna ýmsu starfa, sem námið hefur verið undirbún-
mgur að. — En þeir sem fara í „grammar school“ ganga
undir aðalpróf aftur um 16 ára aldur og geta áunnið sér
>,general certificate at ordinary level.“ Fá þeir því aðeins
nð halda áfram til síðasta stigs bóknámsskólans (mennta-
skólans), að þau hafi staðizt þetta próf í 5 námsgreinum,
°g fengið skírteini þar um. Þær námsgreinar eru: enska
stærðfr., eitt erlent tungumál (venjulega franska, þýzka
eða spænska), náttúruvísindi, einkum eðlis- og efnafræði,
°g ein grein að auki, sem frjálst val er um.