Menntamál - 01.08.1966, Qupperneq 101
MENNTAMAL
187
hópum er skipað starfsheitum, þar sem menntunarkröfur
eru minni, oft miklu minni, og ekki verður séð, að ábyrgð
og sérhæfni í starfi þessara einstaklinga og hópa sé svo
miklu meiri, að réttlætt geti staðsetningu þeirra.
Jafnframt því að við álítum eðlilegt og skylt að gagn-
rýna Kjararáð fyrir þessi vinnubrögð, teljum við sjálfsagt
að benda á þau atriði tillagnanna, er varða kennara, og
stefna í rétta átt að okkar dómi.
Stjórn S.Í.B. hefur um árabil barizt fyrir og gert kröfu
um, að kennurum með almennu kennaraprófi verði greidd
jafnhá laun á öllu skyldunámsstiginu (7—15 ára). Við síð-
ustu kjarasamninga hafnaði Kjararáð þeirri kröfu, en hefur
nú fallizt á hana, og er það vel. Skorar sambandsstjórn á
Kjararáð að hvika í engu frá þeirri kröfu og fylgja henni
fast eftir.
I frumdrögum Kjararáðs er lagt til að raða kennurum
menntaskóla, framhaldsskóla og barnaskóla með ákveðnu
flokkabili í launastiganum, og er með því einnig stefnt í
rétta átt, þótt staðsetningin sé tvímælalaust lægri en skyldi,
miðað við ýmsa aðra starfshópa. Þá er í drögum þessum
haldið opinni leið til framhaldsmenntunar kennara, er
veiti rétt til hærri launa, eins og við teljum æskilegt og
réttmætt. En ákvæðin um námskeiðin eru vægast sagt svo
vanhugsuð, að engar líkur eru á, að unnt verði að fram-
kvæma þau á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í tillögunum.
Það er t. d. gjörsamlega óraunhæft að ætlast til þess, að
kleift sé að efna til námskeiða fyrir allan þorra kennara á
barna- og framhaldsskólastigi á þeim skamma tíma, sem
til þess er ætlaður samkvæmt tillögunum.
Tillögurnar um námskeiðin er því nauðsynlegt að end-
urskoða gaumgæfilega og lagfæra, svo að viðhlítandi sé.
Að því athuguðu, sem hér hefur stuttlega verið rakið,
hefur stjórn S.Í.B. endurskoðað launatillögur sínar frá 15.
des. 1964 með tilliti til frumdraga Kjararáðs og gerir nú
eftirfarandi kröfur til breytinga og nánari skilgreiningar: